Fara í efni
Íþróttir

Þjálfarateymi Þórs klárt – sigur í fyrsta leik

Frá vinstri: Arnar Geir Halldórsson, Stefán Ingi Jóhannsson, Jónas L. Sigursteinsson, Sveinn Leó Bogason, Sigurður Heiðar Höskuldsson og Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar. Mynd af vef Þórs

Þór vann B-lið KA 4:0 í Boganum á laugardaginn í Kjarnafæðismótinu, árlegu æfingamóti Knattspyrnudómarafélags Norðurlands. Fyrir leikinn var gengið formlega frá ráðningum allra í þjálfarateymi Þórs fyrir komandi keppnistímabil.

 
„Liðið hefur æft af krafti frá því í nóvember og hafa því allir þjálfarar þegar hafið störf,“ segir á heimasíðu Þórs. „Knattspyrnudeild lýsir yfir mikilli ánægju með að allt sé komið á hreint varðandi þjálfaramálin og bindur miklar væntingar við störf teymisins. Um leið hvetjum við Þórsara til að fylkja sér á bak við liðinu í baráttunni næsta sumar.
 
Þar segir ennfremur:
 
  • Sigurður Heiðar Höskuldsson er nýr aðalþjálfari meistaraflokks karla og gerir samning við knattspyrnudeild út árið 2026.
Sigurður Heiðar starfaði síðast sem aðstoðarþjálfari Vals en stýrði þar áður Leikni Reykjavík, bæði í efstu og næstefstu deild. Sigurður er ráðinn í fullt starf og mun ásamt því að þjálfa meistaraflokk karla hafa aðkomu að fótboltamálum 2. flokks félagsins og taka virkan þátt í uppbyggingu æfingaáætlana og stefnu í 2.-4.flokki í samvinnu við yfirþjálfara félagsins.
 
  • Sveinn Leó Bogason er áfram aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla líkt og undanfarin tvö ár.
Sveinn Leó gerir eins árs samning með möguleika á framlengingu að þeim tíma liðnum. Sveinn Leó er borinn og barnfæddur Þórsari og var þjálfari 2.flokks karla áður en hann tók við starfi aðstoðarþjálfara meistaraflokks fyrir tveimur árum síðan.
 
  • Jónas L. Sigursteinsson heldur áfram að sjá um markmannsþjálfun meistaraflokks karla en hann kom inn í það starf fyrir ári síðan.

Jónas hefur áratuga reynslu af þjálfun og hefur komið að þjálfun nær allra, ef ekki allra flokka Þórs á sínum þjálfaraferli auk þess að hafa þjálfað um árabil hjá Vestra.

  • Stefán Ingi Jóhannsson verður styrktarþjálfari meistaraflokks karla.

Stefán þekkir vel til hjá okkur eftir að hafa komið að bæði sjúkra- og styrktarþjálfun undanfarin ár en tekur nú að sér enn stærra hlutverk í þjálfarateyminu.

  • Arnar Geir Halldórsson er ráðinn í nýtt starf hjá knattspyrnudeild þar sem hans hlutverk í teyminu er að leiða afreksstarf yngstu leikmanna meistaraflokks auk þess að taka að sér önnur verkefni fyrir knattspyrnudeild.

Arnar Geir hefur verið yfirþjálfari yngri flokka frá árinu 2020 og heldur því starfi áfram samhliða en í breyttri mynd með höfuðáherslu á 2.-4.flokk og er það hluti af skipulagsbreytingum hjá unglingaráði.

Á Facebook síðu Knattspyrnudómarafélagsins er fjallað stuttlega um leikinn, þann fyrsta hjá bæði A-liði Þórs og B-liði KA á mótinu:

Þórsarar tefldu fram nokkuð sterku liði í bland við unga stráka en lið KA 2 var skipað leikmönnum úr 2.flokki. Þórsarar sigruðu 4-0. Fannar Malmquist Gíslason kom Þórsurum yfir á 34. mín og þannig stóðu leikar í hálfleik. Aron Ingi Magnússon opnaði seinni hálfleikinn strax eftir 50. sekúndur með fallegu marki og Ingimar Kristjánsson skoraði svo á 62. mínútu og á 81. mínútu skoraði Viðar Már Hilmarsson eftir að hafa komið inn af bekknum skömmu áður.