Tæki sem nýtast daglega og skipta miklu máli
Heilsugæslustöð HSN á Akureyri fékk í gær afhent þrjú tæki að gjöf frá Lionsklúbbi Akureyrar, Lionsklúbbnum Ösp og Alþjóðahjálparsjóði Lions (LCIF Lions Clubs International Foundation). Um er að ræða svokallað líkamsgreiningartæki, þvagblöðruskanna og æðasjá; sérhæfð tæki sem styrkja klíníska þjónustu stofnunarinnar verulega, að sögn starfsmanna.

„Það er ómetanlegt fyrir heilsugæsluna sem sinnir allri grunnþjónustu að fá slíkar gjafir þar sem gjafir að þessum toga hafa frekar fallið til sjúkrahúsa,“ sagði Ingibjörg Lára þegar hún ávarpaði hóp Lionsfólks á stuttri samkomu á heilsugæslunni í Sunnuhlíð í gær. „Þróun í heilsugæslunni hefur verið mikil á síðustu árum sem kallar á ýmiskonar tækjabúnað sem þarf að uppfæra og endurnýja og því er mikilvægt að heilsugæslan eigi sér bakhjarla og velunnara eins og ykkur.“
Verðmæti gjafanna eru tæpar þrjár milljónir króna og Ingibjörg Lára sagði þær endurspegla „bæði mikla rausn og sterkan vilja ykkar til að styðja við heilbrigðisþjónustu í nær samfélaginu.“

Valur Helgi Kristinsson, yfirlæknir HSN á Akureyri, brá á leik í gær og sté á líkamsgreiningartækið eftir að það var afhent. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Ingibjörg Lára sagði heilsugæsluna á Akureyri þjónusta um 23 þúsund íbúa. „Þar á meðal er stór hópur fólks sem glímir við langvinna sjúkdóma og þarf reglulegt eftirlit, meðferð og stuðning. Ávinningurinn af þessum gjöfum mun því ná til mjög stórs hóps fólks og hafa raunveruleg áhrif á þá þjónustu sem við veitum samfélaginu,“ sagði Ingibjörg Lára og bætti við: „Þetta eru tæki sem munu nýtast starfsfólki okkar daglega og skipta skjólstæðinga okkar miklu máli.“
Mikilvæg tæki
Ingibjörg Lára segir tækin þrjú munu stuðla að betri þjónustu, nákvæmari greiningu og auknum lífsgæðum þeirra fjölmörgu einstaklinga sem leita til heilsugæslunnar á hverjum degi. Hún lýsti tækjunum stuttlega:
- LÍKAMSGREININGARTÆKIÐ – „Gerir okkur kleift að fá nákvæmari upplýsingar um líkamsbyggingu, vöðvamassa, fituhlutfall og næringarástand einstaklinga. Það styrkir mat okkar og eftirfylgni við fjölbreyttan hóp skjólstæðinga og hjálpar okkur að veita markvissari ráðgjöf og meðferð.“
Hún segir heilsugæsluna sinna stórum hópi einstaklinga með langvinna heilsuvanda, þar á meðal sykursýki og offitu. „Tækið mun því gegna mikilvægu hlutverki í mati, fræðslu og eftirfylgd með þessum hópi. Með betri mælingum og markvissara eftirliti getum við stutt fólk betur í að ná markmiðum sínum og bæta heilsu sína til lengri tíma.“ - ÞVAGBLÖÐRUSKANNINN – „Gerir okkur kleift að meta magn þvags í þvagblöðru á einfaldan og sársaukalausan hátt. Með honum getum við greint og fylgst með vandamálum tengdum þvagtæmingu án þess að grípa til ífarandi aðgerða, sem eykur bæði öryggi og þægindi skjólstæðinga.“
- ÆÐASJÁIN – „Mikilvægt greiningartæki sem hjálpar okkur að meta blóðflæði í útlimum og greina snemma vandamál í æðakerfinu. Hann getur skipt sköpum við mat á sárum, blóðrásarvandamálum og öðrum heilsufarsþáttum þar sem skjót greining er mikilvæg. Fyrir fólk með sykursýki er gott mat á blóðrás oft lykilatriði í forvörnum, meðferð og eftirliti og því mun þetta tæki nýtast þeim hópi sérstaklega vel.“
Mikil ánægja ríkti á heilsugæslustöðinni í gær og Ingibjörg Lára sagði það gera stundina enn sérstakari að gjafir sem þessar væru sjaldgæfar „og því afar verðmætar fyrir starfsemi okkar. Þær eru ekki aðeins mikilvæg viðbót við tækjakost okkar heldur einnig sterk áminning um þann samhug, þá þjónustulund og þá samfélagslegu ábyrgð sem Lionshreyfingin hefur sýnt í gegnum tíðina,“ sagði hún og bætti við að endingu: „Við erum afar þakklát fyrir stuðning ykkar, hlýhug og rausn. Fyrir hönd starfsfólks og allra þeirra skjólstæðinga sem munu njóta góðs af þessum tækjum vil ég færa Lionsklúbbnum Ösp og Lionsklúbbi Akureyrar okkar bestu og innilegustu þakkir.“