Fara í efni
Íþróttir

HSN: Fyrsti barna- og unglingageðlæknirinn

Hrefna Sæunn Einarsdóttir hefur hafið störf sem barna- og unglingageðlæknir á HSN. Mynd af vefsíðu HSN.

Hrefna Sæunn Einarsdóttir hefur hafið störf sem barna- og unglingageðlæknir hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN). Hún er fyrsti barna- og unglingageðlæknirinn í nýrri stöðu innan sálfélagslegrar þjónustu stofnunarinnar og starfar í geðheilsuteymi barna.

Hrefna er Akureyringur en bjó um tíma í Danmörku þar sem hún nam læknisfræði og eignaðist fjölskyldu. Eftir tólf ár þar flutti fjölskyldan til Akureyrar árið 2019. Hún starfaði á Sjúkrahúsinu á Akureyri til ársins 2021, en hóf þá sérnám í barna- og unglingageðlækningum á Landspítalanum. Hún lauk sérnámi í sumar og sneri aftur norður. „Það var ákveðið öryggi í því að vera komin heim og hafa fjölskylduna í nágrenninu. Það skiptir máli að hafa stuðning og bakland í kringum sig,“ segir Hrefna um flutninginn til Akureyrar í viðtali á vef HSN.

Barnið í samhengi við aðstæður sínar

Hrefna prófaði ýmis svið læknisfræðinnar áður en hún fann sig í barna- og unglingageðlækningum. Þar heillaðist hún sérstaklega af nálgun sem tekur mið af barninu sjálfu, fjölskyldu þess og aðstæðum í daglegu lífi. „Mér fannst heillandi að horfa á barnið í samhengi við líf þess og aðstæður. Hvernig líður því heima og í skólanum? Hvernig gengur í samskiptum og hvaða stuðning þarf fjölskyldan?“ segir hún í viðtalinu.

Í starfi sínu hjá HSN leggur hún áherslu á samstarf ólíkra fagstétta og annarra sem koma að málefnum barnsins, meðal annars foreldra, skólaþjónustu og félagsþjónustu. Mikilvægt sé að skoða heildarmyndina þegar leitað er leiða til að bæta líðan barns. „Stundum þarf að styðja foreldra, stundum að vinna með skólanum og oft þarf að gera hvort tveggja. Það skiptir máli að við mætum barninu á réttum forsendum,“ segir Hrefna.

Undirbúningur að aukinni aðkomu að ADHD-greiningum

Eitt þeirra verkefna sem eru í undirbúningi hjá HSN snýr að aukinni aðkomu heilbrigðisþjónustu í heimabyggð að ADHD-greiningum barna. Um er að ræða tilraunaverkefni á vegum heilbrigðisráðuneytisins sem miðar að því að stytta biðtíma og færa þjónustuna nær börnum og fjölskyldum þeirra.

Verkefnið er enn í undirbúningi og útfærslu. Hrefna segir langan biðtíma eftir þjónustu vera áskorun og að efla þurfi samstarf þjónustuaðila og uppbyggingu sérhæfðra teyma.

Með nýrri stöðu barna- og unglingageðlæknis hjá HSN skapast að hennar sögn tækifæri til að tengja læknisfræðilegt mat betur við starf teymisins og efla heildstæða þjónustu í heimabyggð. „Það sem skiptir mestu máli er að geta boðið börnum og fjölskyldum þeirra heildstæðari og sérhæfðari þjónustu í heimabyggð,“ segir Hrefna Sæunn Einarsdóttir.