Fara í efni
Íþróttir

Sunna og Unnar valin íshokkífólk ársins

Sunna Björgvinsdóttir og Unnar Hafberg Rúnarsson eru íshokkífólk ársins 2025.

Tveir Akureyringar, Sunna Björgvinsdóttir og Unnar Hafberg Rúnarsson, hafa fengið útnefningu sem íshokkífólk ársins 2025. Það er stjórn Íshokkísambands Íslands sem velur, en viðurkenningar verða afhentar í hófi Samtaka íþróttafréttamanna og ÍSÍ þegar kjöri íþróttamanns ársins verður lýst þann 3. janúar í Hörpu.

Sunna hefur leikið í Svíþjóð frá 2019, en kemur upphaflega úr röðum SA og spilaði þar bæði í yngri flokkum og meistaraflokki. Þá hefur hún verið fastamaður í landsliðinu frá 2015, þegar hún var 15 ára. Unnar hefur verið lykilmaður í liði Skautafélags Akureyrar og A-landsliðinu. Hann spilaði í Svíþjóð í nokkur ár frá 16 ára aldri, en kom heim 2022 og hefur spilað fyrir SA síðan. 

Umsagnir stjórnar Íshokkísambandsins um leikmennina á vef sambandsins eru svohljóðandi: 

Unnar er 23 ára og hefur verið lykilleikmaður í liði Víkinga Skautafélags Akureyrar og A-landsliði karla. Unnar hefur leikið lengst af hjá Skautafélagi Akureyrar en hann fór ungur að spila í Svíþjóð, þá 16 ára, tímabilið 2018/2019 og síðan með U18 og U20 liðum Sollentuna til ársins 2022 en þá fór hann heim til Akureyrar og hefur spilað þar síðan. Hann hefur leikið í öllum karlalandsliðum Íslands, þ.e.a.s U18, U20 og A-landsliði karla. Hann hefur leikið alls 46 landsleiki með þeim landsliðum. Unnar er jákvæður og skapandi leikmaður sem skilar ávallt góðri frammistöðu. Hann er góð fyrirmynd fyrir yngri leikmenn. Á síðasta HM var hann valinn besti leikmaður Íslands á mótinu en hann var einnig sigahæsti leikmaður Íslands, skoraði 6 mörk og átti 4 stoðsendingar.

Hægt er að skoða feril Unnars betur á https://www.eliteprospects.com/player/611419/unnar-runarsson

Sunna er 25 ára og lék með Skautafélagi Akureyrar um árabil þar til hún flutti til Svíþjóðar árið 2019 og hefur leikið þar með Sodertelje SK, IF Troja-Ljungby, IF Leksands (SDHL) og HV71 (SDHL) með mjög góðum árangri. Hún hefur leikið með kvennalandsliði Íslands síðan 2015, þá 15 ára, og hefur verið fastur leikmaður landsliðsins allar götur síðan. Hún hefur leikið alls 49 leiki fyrir íslands hönd. Sunna er einstaklega jákvæð, góður liðsfélagi og er fyrirmynd margra yngri iðkenda. Sunna er fyrirliði A-landsliðs kvenna og veldur því ábyrgðar hlutverki vel, hvort sem það er í leik eða utan hans. Á síðasta HM var Sunna sigahæsti leikmaður Íslands, skoraði 3 mörk og átti 2 stoðsendingar.

Hægt er að skoða feril Sunnu betur á https://www.eliteprospects.com/player/426652/sunna-bjorgvinsdottir