Fara í efni
Íþróttir

SA Víkingar: Bleikur leikur á laugardag

Hafþór Andri Sigrúnarson, Jóhann Már Leifsson og Heiðar Gauti Jóhannsson með bleiku treyjuna. Skjáskot úr myndböndum íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar.

Leikur SA Víkinga, karlaliðs Skautafélags Akureyrar í íshokkí, gegn liði Skautafélags Reykjavíkur, Íslandsmeisturunum, á laugardag verður meira en bara íshokkíleikur. Vissulega eru viðureignir þessara félaga ávallt miklir baráttuleikir enda hafa þessi tvö lið barist um titlana sem í boði hafa verið undanfarin ár. En stundum er litið lengra og hærra en á baráttu erkifjenda inni á svellinu því það er vissulega fleira sem skiptir máli í lífinu en íþróttir.

Aðgangseyrir á leikinn verður aðeins 100 krónur, en það segir ekki alla söguna því að sjálfsögðu verður tekið við frjálsum framlögum. Sjóðurinn sem þannig verður til rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Útbúin hefur verið bleik keppnistreyja sem SA Víkingar, sem venjulega spila í rauðu, munu klæðast í leiknum gegn SR. Í hjartastað á treyjunni er að sjálfsögðu bleika slaufan, tákn árlegs átaksverkefnis Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum sem er í hámarki í bleikum október.

Fyrirmyndin að Hundraðkrónuleiknum er sænsk, en þar tíðkast að halda svokallaða „Enkronasmatchen“ til styrktar góðu málefni. Hundraðkrónuleikurinn verður í boði Eltech og Múreyjar. 

SA Víkingar mátuðu bleiku treyjurnar á brúnni við Drottningarbrautinni. 

Að auki verður að venju boðið upp á pökkakast í öðru leikhléinu þar sem gestum á leiknum gefst kostur á að borga fyrir pökk og kasta inn á svellið í þeim tilgangi að hitta sem næst miðjupunktinum. Sigurvegarinn hlýtur bleika keppnistreyju SA Víkinga, merkta fyrirliðanum, #10 Leifsson, að launum. 

Fyrirliðarnir þrír, Hafþór Andri Sigrúnarson, Jóhann Már Leifsson og Heiðar Gauti Jóhannsson taka sig vel út í bleiku og mættu kannski klæðast þeim lit oftar. 

„Við vitum hvað SA samfélagið og Akureyringar geta gert,“ sagði Hafþór Andri Sigrúnarson meðal annars í myndbandi þar sem fyrirliðar liðsins, Jóhann Már Leifsson og aðstoðarfyrirliðarnir Hafþór Andri Sigrúnarson og Heiðar Gauti Jóhannsson, komu fram og sögðu frá framtakinu og leiknum á laugardag.