Sex frá GA komust gegnum niðurskurð
Öðrum keppnisdegi á Íslandsmótinu í höggleik í golfi lauk nú í kvöld. Eftir tvo keppnisdaga dettur um helmingur keppenda úr leik og af 13 kylfingum frá Golfklúbbi Akureyrar (GA) komust 6 gegnum niðurskurðinn. Rigning og rok hafa sett svip sinn á fyrstu tvo keppnisdagana og aðstæður fyrir kylfinga hafa verið krefjandi. Lilja Maren Jónsdóttir úr GA fékk flesta fugla allra keppenda í kvennaflokki í dag.
Í kvennaflokki eru 40 keppendur og þar af eru þrír frá GA. 22 keppendur komust gegnum niðurskurðinn og þær Lilja Maren Jónsdóttir og Andrea Ýr Ásgrímsdóttir úr GA voru þar á meðal. Björk Hannesdóttir náði ekki að fylgja eftir góðri frammistöðu í gær og er úr leik.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili er ríkjandi Íslandsmeistari og náði forystunni í kvennaflokki í dag. Hún var eini keppandinn sem náði að leika undir pari, spilaði á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari. Hún er þremur höggum undir pari í heildina, hefur leikið á 139 höggum, en næst kemur Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á 141 höggi eða einu höggi undir pari samtals. Þær eru einu keppendurnir í kvennaflokki sem eru undir pari.
Skor og staða hjá GA-keppendum í kvennaflokki eftir tvo keppnisdaga:
- Lilja Maren Jónsdóttir lék á 73 höggum í dag og er í 9. sæti á samtals 151 höggi
- Andrea Ýr Ásmundsdóttir lék á 75 höggum í dag og er jöfn tveimur öðrum í 15. sæti á 155 höggum
- Björk Hannesdóttir lék á 84 höggum í dag og endaði á 161 höggi
Keppendur sem léku á 158 höggum og færri komust gegnum niðurskurðinn. Björk var þremur höggum frá því og þar munaði um að hún tapaði fimm höggum á þremur síðustu holunum í dag. Björk hefur því lokið leik en Lilja Maren og Andrea Ýr halda áfram keppni. Lilja Maren gerði sér lítið fyrir og fékk flesta fugla allra keppenda í kvennaflokki í dag – fimm talsins. Lilja Maren er fimm höggum frá þriðja sætinu.

Lilja Maren fékk fimm fugla í dag en lenti líka í vandræðum af og til, eins og skorkortið sýnir.

Á Korpúlfsstaðavelli í gær. Veigar Heiðarsson og kylfusveinn hans á mótinu, faðir hans, Heiðar Davíð Bragason golfkennari og fyrrverandi Íslandsmeistari. Mynd: GSÍ
Í karlaflokki er Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur, ríkjandi Íslandsmeistari, í sérflokki og lék á 68 höggum í dag. Hann er efstur á 134 höggum, eða átta höggum undir pari, og næstu menn eru fimm höggum á eftir. Alls komst 51 kylfingur gegnum niðurskurðinn, af þeim 92 sem hófu leik. Af tíu kylfingum frá GA komust fjórir áfram en hinir sex eru úr leik.
Skor og staða hjá GA-keppendum í karlaflokki eftir tvo keppnisdaga:
- Barri Björgvinsson lék á 72 höggum í dag og er jafn fjórum öðrum í 19. sæti á 147 höggum samtals
- Veigar Heiðarsson lék á 68 höggum í dag og er jafn fjórum öðrum í 19. sæti á 147 höggum samtals
- Mikael Máni Sigurðsson lék á 72 höggum í dag og er jafn sjö öðrum í 30. sæti á 150 höggum samtals
- Ágúst Már Þorvaldsson lék á 78 höggum í dag og er jafn fjórum öðrum í 38. sæti á 151 höggi samtals
- Óskar Páll Valsson lék á 75 höggum í dag og endaði á 153 höggum
- Valur Snær Guðmundsson lék á 77 höggum í dag og endaði á 156 höggum
- Patrekur Máni Ævarsson lék á 79 höggum í dag og endaði á 157 höggum
- Arnar Freyr Viðarsson lék á 81 höggi í dag og endaði á 157 höggum
- Maron Björgvinsson lék á 82 höggum í dag og endaði á 165 höggum
- Hafsteinn Thor Guðmundsson lék ekki seinni hringinn í dag
Keppendur sem léku á 152 höggum eða færri komust gegnum niðurskurðinn. Óskar Páll var aðeins einu höggi frá því að komast áfram og munaði þar um að hann fékk skolla á tveimur síðustu holunum í dag. Barri og Mikael Máni léku mjög traust golf í erfiðum aðstæðum í dag, fengu báðir þrettán pör, tvo fugla og þrjá skolla. Þess má geta að Barri er fæddur árið 2011 og er því aðeins fimmtán ára. Veigar Heiðarsson sýndi sitt rétta andlit í dag og bætti sig um hvorki meira né minna en ellefu högg frá í gær. Hann lék á þremur höggum undir pari en aðeins einn keppandi í karlaflokki skilaði inn betra skori í dag.

Veigar Heiðarsson lék á 68 höggum í dag. Byrjaði á skolla en lék afar vel eftir það.
Keppendur hefja leik á þriðja keppnisdegi árla í fyrramálið og það verður sannarlega spennandi að fylgjast með baráttunni. Veðurspáin fyrir helgina er góð og kylfingarnir geta vonandi sleppt regnfötum og regnhlífum.
Fylgjast má með stöðunni í mótinu í rauntíma á þessari síðu og RUV mun einnig sýna beint frá mótinu síðdegis á morgun.