Sanngjarn sigur og þrjú afar dýrmæt stig
Þórsarar lyftu sér í gærkvöldi úr botnsæti efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu, Bestu deildarinnar, með 1:0 sigri á Breiðabliki á heimavelli. Þórsliðið er nú næst neðst, með 15 stig eins og KA en FH er neðst með 13 stig. Síðustu leikir 17. umferðar verða í kvöld þegar KA spilar í Keflavík og FH fær KR í heimsókn þannig að staðan gæti breyst á ný en hvar sem Þórsarar verða í töflunni eftir kvöldið verður að segja þeim til hróss að þeir léku vel í gær og sigurinn var sanngjarn.
Það var Daninn Christian „Greko“ Jakobsen sem gerði eina markið undir lok fyrri hálfleiks; sennilega auðveldasta mark hans á ferlinum. Einar Freyr Halldórsson tók hornspyrnu frá vinstri, boltinn sveif yfir fremstu varnarmenn við nærstöngina og barst reyndar alveg að fjærstöng án þess að nokkur kæmi við hann, og þar beið sá danski aleinn og yfirgefinn og skoraði auðveldlega. Afskaplega slakur varnarleikur gestaliðsins, en það er ekki vandamál Þórsara!
Markið má sjá á myndum Ármanns Hinriks hér að neðan.



Myndir: Ármann Hinrik
Frábærir í fyrri hálfleik
Fyrri hálfleikurinn í gærkvöldi er líkast til sá besti hjá Þórsurum í sumar eða a.m.k. einn sá allra besti. Leikmenn komu gríðarlega einbeittir til leiks, kappsamir og fullir sjálfstrausts eftir að hafa fengið fjögur stig úr síðustu tveimur leikjum.
Þórsarar, sem léku undan dálitlum vindi, voru mun betri en gestirnir í fyrri hálfleik; vörðust framarlega, gáfu markverði og varnarmönnum Breiðabliks engin grið og hefðu átt að gera meira en eitt mark. Þegar rúmur hálftími var liðinn small boltinn í þverslá Blikamarksins eftir þrumuskot Fannars Daða Malmquist Gíslasonar utan vítateigs, af slánni fór hann út í teig þar sem „Greko“ Jakobson skallaði úr mjög erfiðri stöðu en boltinn fór yfir markið.
Skömmu síðar þurfti að gera sjaldgæfa skiptingu: dómarinn, Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, kenndi sér meins í fæti og hafði hlutverkaskipti við Sigurð Hjört Þrastarson fjórða dómara, þess sem starfar utan vallar.

Fannar Daði Malmquist Gíslason lætur vaða utan vítateigs þegar hálftími var liðinn. Boltinn small í þverslá Blikamarksins. Fannar var gríðarlega duglegur í gær, þetta var mjög líklega besti leikur hans í sumar. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Blikarnir voru miklu meira með boltann í seinni hálfleik, herjuðu á heimamenn sem vörðust hetjulega og fögnuðu að lokum sætum sigri. Blikarnir voru klaufar að jafna ekki; Aron Birkir varði einu sinni mjög vel, annað skot Blika fór hárfínt framhjá og einu sinni björguðu Þórsarar á línu eftir darraðardans í markteignum. Þór hefði reyndar getað bætt við marki, Fannar Daði laumaði boltanum laglega á Þorra Ingólfsson en Anton Ari í Blikamarkinu varði gott skot hans.
Öflug liðsheild
Fimm breytingar voru gerðar á Þórsliðinu frá jafnteflinu við KA í síðustu umferð. Ágúst Eðvald Hlynsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson voru þá í leikbanni en byrjuðu í gær, lánsmaðurinn ungi frá Víkingi, Þorri Ingólfsson, og Ásbjörn Líndal voru einnig í byrjunarliðinu, svo og Spánverjinn þrautreyndi, Kevin Vazquez, sem kom til Akureyrar á föstudaginn og æfði í fyrsta sinn með liðinu á laugardag. Hann hefur oftast leikið sem hægri bakvörður en var aftasti miðjumaður í gær. Vazquez hefur ekki leikið síðan keppnistímabilinu lauk á Spáni í vor en gæðin leyna sér ekki og spennandi verður að sjá til Spánverjans þegar hann verður kominn á fulla ferð.
Birgir Ómar Hlynsson og Sigfús Fannar Gunnarsson sem hófu leikinn gegn KA voru á bekknum að þessu sinni og þeir Kristófer Kristjánsson, Victor Bertomeu og Ragnar Óli Ragnarsson voru allir fjarri góðu gamni en gert er ráð fyrir að þeir verði tilbúnir í slaginn á ný von bráðar.
Þórsarar voru kraftmiklir í gær og það leynir sér ekki að meira sjálfstraust er í hópnum en um tíma í sumar og það er mikilvægt; meira býr í liðinu en það hefur sýnt. Eins og Þórsarar léku í gær þurfa þeir í sjálfu sér ekki að óttast neinn andstæðing. Leikmennirnir sem hafa bæst hafa við undanfarið styrkja hópinn og breiddin skiptir miklu máli í því langhlaupi sem Besta deildin er. Ánægjulegt var að sjá Aron Inga Magnússon koma inn á undir lokin í gær en hafði ekki spilað síðan í lok maí vegna meiðsla.
Eiður Benedikt Eiríksson, jafnan titlaður aðstoðarþjálfari, stýrði Þórsliðinu í gær því Sigurður Heiðar Höskuldsson, aðalþjálfari, var í banni. Hann fylgdist sallarólegur með – eða ekki! – úr blaðamannaherberginu.

Spánverjinn Kevin Vazquez var með Þór í fyrsta skipti í gær. Afar spennandi viðbót við hópinn, leikmaður sem á örugglega eftir að skipta Þórsliðið miklu máli. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Þór: Aron Birkir Stefánsson - Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Yann Emmanuel Affi, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson - Ágúst Eðvald Hlynsson, Einar Freyr Halldórsson (Sverrir Páll Ingason 89.), Kevin Vazquez (Birgir Ómar Hlynsson 75.) - Fannar Daði Malmquist Gíslason (Atli Sigurjónsson 72.), Christian „Greko“ Jakobsen, Þorri Ingólfsson (Aron Ingi Magnússon 89.).

Ágúst Eðvald Hlynsson með boltann í gær. Hann var kraftmikill, barðist eins og ljón allan tímann. Mynd: Skapti Hallgrímsson
17 umferðir eru að baki og því fimm leikir eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt. Sex efstu halda áfram baráttu um Íslandsmeistaraititilinn en sex næstu leika innbyrðis. Tvö neðstu að þeirri viðbót lokinni falla.
Þórsarar hafa unnið fjóra leiki í sumar, gert þrjú jafntefli og tapað 10 leikjum. Athyglisvert er að allir sigrarnir voru á liðum sem eru á eða við toppinn. Í fyrstu umferð unnu þeir Val á útivelli (Valur er nú í 5. sæti), og síðan Fram, Víking og Breiðablik á heimavelli. Íslandsmeistarar Víkings eru langefstir í deildinni, Fram er í 2. sæti og Breiðablik í 4. sæti. Jafnteflin eru þrjú, gegn FH úti, KR heima og KA úti og Þórsarar hafa tapað fyrir KR, Breiðabliki, Víkingi, Keflavík og Fram á útivelli en KA, ÍA, Stjörnunni, ÍBV og Val heima.
Næsti leikur er á útivelli gegn Skagamönnum sem eru í sjötta sæti, en fjórir síðustu leikirnir fyrir skiptingu eru gegn liðum sem einnig eru í neðri hlutanum.
- Sunnudag 9. ágúst 18.00
ÍA - Þór - Laugardag 15. ágúst 17:00
Þór - Keflavík - Sunnudag 23. ágúst 17:00
Stjarnan - Þór - Sunnudag 30. ágúst 16:00
ÍBV - Þór - Sunnudag 6. september 14:00
Þór - FH