Fara í efni
Íþróttir

Metþátttaka –  300 í Akureyrarhlaupinu

Fjölskyldufimma! Feðginin Helga Maren Helgadóttir (501) og Helgi Rúnar Pálsson (502) úr UFA hlupu bæði hálfmaraþon í gær og komu samtímis í mark. Móðirin og eiginkonan Anna Berglind Pálmadóttir, sem sigraði í 5 km hlaupinu, gefur hér dóttur sinni fimmu. Myndir: Barði Westin

Aldrei hafa fleiri tekið þátt í Akureyrarhlaupinu en í gær; á síðasta ári mættu 240 hlauparar til leiks, sem var met, en það var slegið hressilega í gær þegar 300 mann þeystu um götur bæjarins. Þetta skemmtilega almenningshlaup, sem nú er kennt við gagnaverið atNorth, hefur því fest sig rækilega í sessi. Veðrið

Að venju var boðið upp á þrjár vegalengdir; hálfmaraþon (21,1 km), sem jafnframt er Íslandsmeistaramót í greininni, 10 km og 5 km. Flestir keppendur hlupu í 5 km, 144 fóru þá vegalengd, 115 hlupu 10 km og 33 hálfmarþon.

Hlaupið af stað í gær. Lengst til vinstri (623) Er Þórunn Friðlaugsdóttir, einn starfsmanna Sjúkrahússins á Akureyri, og Fremst (421) er Elísabet Bára Haraldsdóttir. Mynd: Barði Westin

„atNorth styrkir hlaupið með myndarlegum hætti og í ár bættist sú nýjung við að það fyrirtæki sem átti flesta hlaupara gat valið góðgerðarsamtök til að styrkja í boði atNorth. Sjá mátti starfsmannahópa á hlaupum s.s. slökkviliðið í fullum herklæðum en það var starfsfólk SAK sem hneppti góðgerðarhnossið að þessu sinni,“ segir í tilkynningu frá UFA.

  • Í karlaflokki sigraði Arnar Pétursson úr Breiðabliki í hálfmaraþoni og varð þar með Íslandsmeistari. Hann hljóp á einni klukkustund og átta mínútum; nákvæmlega 1:08:12, sem er 10 sekúndna bæting á brautarmeti hans frá 2023. Hann fór því heim 75.000 kr ríkari í boði T+. Annar var Thijs Kreukels á 1:16:55 og þriðji Sölvi Sturluson á 1:19:43.
  • Sigurvegari og Íslandsmeistari í hálfmaraþoni kvenna var Íris Anna Skúladóttir úr FH á 1:20:40, önnur var heimakonan Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir úr UFA á 1:21.55 og þriðja var Íris Dóra Snorradóttir úr FH á 1:22:11.
  • Í 10 km hlaupi var Katla Rut Róbertsdóttir Kluvers fyrst kvenna á 39:05, önnur var Helga Guðný Elíasdóttir á 39:30 og þriðja Auður Ómarsdóttir á 40:18.
  • Í karlaflokki var Jón Kristófer Sturluson fyrstur í 10 km hlaupinu á 33:58, Pétur Haukur Jóhannesson annar á 34:51 og Sigurgísli Gíslason þriðju á 35:09.
  • Í 5 km hlaupi sigraði Gunnar Andri Pétursson, Ungmennafélagi Grundarfjarðar, í karlaflokki á 18:05. Magnús Helgi Sigurðsson var annar á 18:45 og Frey Eduardo þriðji á 18:49.
  • Anna Berglind Pálmadóttir úr UFA kom fyrst í mark í 5 km hlaupi kvenna á 19:29, önnur var Fanney Rún Stefánsdóttir á 19:57 og Rannveig Oddsdóttir þriðja á 20:23.

Tíma allra sem hlupu má finna hér: https://timataka.net/akureyrarhlaup2026/

Starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri sem tók þátt í hlaupinu í gær. Mynd: Barði Westin

Tveir starfsmanna Slökkviliðs Akureyrar sem hlupu í gær, Damian Stanislaw Ksepko (sá neðri) og Róbert Már Þorvaldsson. Mynd: Barði Westin

Mynd: Barði Westin