Mateo semur áfram við KA til tveggja ára

Miguel Mateo Castrillo hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við blakdeild KA og þjálfar áfram bæði karla- og kvennalið félagsins auk þess að leika afram með KA. Hann tekur nú einnig við starfi yfirþjálfara allra yngri flokka.
Bæði lið hafa verið afar sigursæl undir stjórn Mateo síðustu ár og á nýliðnum vetri unnu þau einmitt alla titla sem í boði voru; urðu deildar-, Íslands- og bikarmeistarar. „Mateo hefur á sama tíma verið einn allra besti leikmaður landsins og verið ósjaldan stigahæsti leikmaður efstudeildar,“ segir á heimasíðu þar sem tíðindin eru tilkynnt.
Mateo samdi við KA árið 2018, hóf þá að leika með félaginu auk þess að þjálfa kvennaliðið. „Fyrir komu Mateo hafði kvennalið KA einu sinni orðið deildarmeistari en Mateo braut strax blað í sögu félagsins því stelpurnar urðu Íslands-, [b]ikar- og [d]eildarmeistarar á tímabilinu og þá var hann í lykilhlutverki í karlaliði KA sem lék sama leik og var KA fyrsta liðið í blaksögunni sem var handhafi allra titla karla og kvenna á sama tíma.“
Velgengnin hefur haldið áfram og í raun verið ótrúleg síðustu ár; kvennaliðið hefur orðið Íslandsmeistari fimm sinnum – 2019, 2022, 2023, 2024 og 2025, bikarmeistari fjórum sinnum – 2019, 2022, 2023 og 2025, og deildarmeistari sex sinnum – 2019, 2020, 2022, 2023, 2024 og 2025).
„Mateo hefur á sama tíma verið einn besti leikmaður landsins og verið gríðarlega öflugur með karlaliðinu,“ segir í tilkynningunni. „Hann tók svo við sem spilandi aðalþjálfari karlaliðsins fyrir veturinn 2022-2023 og undir hans stjórn urðu strákarnir Íslandsmeistarar árið 2023 og loks hampaði liðið öllum titlunum sem í boði voru á nýliðnu tímabili og hefur KA því unnið þetta mikla afrek tvívegis að vera handhafi allra titla karla og kvenna á sama tíma en ekkert annað félag getur státað sig af því.“
Nánar hér: Mateo stýrir Íslandsmeistaraliðum KA áfram