Lilja Maren vann og fór holu í höggi
Lilja Maren Jónsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar varð hlutskörpust í flokki 17-18 ára stúlkna á fyrsta móti Unglingamótaraðarinnar í golfi sem fram fór á Þorlákshafnarvelli um hvítasunnuhelgina. Hún lék frábært golf síðari tvo keppnisdagana og kórónaði frammistöðuna með því að fara holu í höggi á lokahringnum. Bryndís Eva Ágústsdóttir úr GA hafnaði í öðru sæti.
Lilja Maren var í smá basli á fyrsta hring og lék hann á 77 höggum, eða 5 höggum yfir pari og var átta höggum frá toppsætinu. Hún kom sér niður á parið með frábærum 2. hring þegar hún lék á 67 höggum og var einu höggi á eftir Bryndísi Evu fyrir þriðja og síðasta hringinn. Lilja Maren lék síðasta hringinn einnig á 67 höggum og endaði á 211 höggum samtals, eða fimm höggum undir pari. Á lokahringnum gerði hún sér lítið fyrir og fór holu í höggi á annarri braut vallarins. Bryndís Eva lék síðasta hringinn á einu höggi yfir pari og endaði á parinu samanlagt, fimm höggum á eftir Lilju Maren.
Glæsilegur árangur hjá þeim báðum og ekki langt á eftir kom Björk Hannesdóttir úr GA en hún endaði í 5. sæti á 223 höggum eða 7 höggum yfir pari. Ragnheiður Svava Björnsdóttir úr GA komst ekki gegnum niðurskurðinn eftir 2 hringi.

Skorkort Lilju Marenar. Auk þess að fara holu í höggi á lokahringnum fékk hún samtals sextán fugla keppnisdagana þrjá.
- Í flokki pilta 17-18 ára varð Hafsteinn Thor Guðmundsson úr GA í 6. sæti á 5 höggum yfir pari en Patrekur Máni Ævarsson komst ekki gegnum niðurskurðinn eftir 2 hringi. Í þessum flokki ógnaði enginn Kristjáni Karli Guðjónssyni úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar en hann setti met á mótaröðinni með því að leika á 21 höggi undir pari og sigra með fáheyrðum yfirburðum.
- Í flokki pilta 15-16 ára hafnaði Arnar Freyr Viðarsson úr GA í 5. sæti á tveimur höggum yfir pari samtals, Ágúst Már Þorvaldsson varð jafn í 10. sæti á 9 höggum yfir pari og Egill Örn Jónsson í 12. sæti á 11 höggum yfir pari.