Fara í efni
Íþróttir

Kolbeinn Höður er íþróttakarl FH 2023

Kolbeinn Höður Gunnarsson, íþróttakarl FH 2023. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Spretthlauparinn Kolbeinn Höður Gunnarsson frá Akureyri, sem nú keppir undir merkjum FH í Hafnarfirði var körinn íþróttakarl félagsins 2023. Þetta var tilkynnt á gamlársdag.

Á heimasíðu FH er fjallað um kjörið. Þar segir:

Íþróttakarl FH er Kolbeinn Höður Gunnarsson. Hann hlýtur þá sæmd fyrir 200 m hlaup innanhúss, en hann hljóp á 21,03 sek og setti Íslandsmet. Hann setti einnig Íslandsmet í 60 m hlaupi innanhúss 6,68 sek, 200 m hlaupi utanhúss 20,91 sek og jafnaði metið tvívegis í 100 m hlaupi með 10,51 sek. Þá var hann í sveit Íslands sem setti Íslandsmet í 4 x 100 m boðhlaupi í Evrópubikarkeppninni sem fram fór í Póllandi í júní. Kolbeinn varð Íslandsmeistari í 60 og 200 m hlaupi innanhúss og 100 m utanhúss. Sigraði 100 m í Bikarkeppni FRÍ þar sem hann var fyrirliði karlaliðsins. Þá varð Kolbeinn annar í 100 m á Norðurlandameistaramótinu er fram fór í Kaupmannahöfn í lok maí. Hljóp á 10,29 sek langt undir Íslandsmetinu en meðvindur var of mikill. Langbesta keppnisár Kolbeins hingað til sem er góð fyrirmynd og hefur m.a. þjálfað yngri flokkana við góðan orðstír.