Fara í efni
Íþróttir

Keppnisvöllur, stúka og félagsaðstaða fyrir 2,6 milljarða

Eiríkur S. Jóhannsson formaður KA og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri eftir undirritun samningsins í dag. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Skrifað hefur verið undir endanlegan samning um uppbyggingu á svæði Knattspyrnufélags Akureyrar. Eiríkur S. Jóhannsson, formaður KA, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri munduðu pennana við athöfn í KA-heimilinu í dag. Samningurinn er framhald af viljayfirlýsingu milli aðila sem var undirrituð í desember 2021.

Framkvæmdir eru þegar hafnar við framtíðarkeppnisvöll félagsins en miklar framkvæmdir verða á svæðinu næstu árin. Áætlaður kostnaður við keppnisvöllinn, áhorfendastúku og félags- og búningsaðstöðu er rúmlega 2,6 milljarðar króna á núverandi verðlagi.

  • Á KA-svæðinu verður útbúinn upphitaður aðalkeppnisvöllur fyrir knattspyrnu með gervigrasi og 800 LUX flóðlýsingu og öðrum búnaði sem stenst leyfisreglugerð Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) sem byggir á viðmiðunarreglum og kröfum leyfiskerfis Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA).
  • Austan við keppnisvöllinn rís yfirbyggð stúka fyrir allt að 1.000 manns í sæti.
  • Í stúkumannvirkinu verður áhaldageymsla fyrir félagssvæði KA, snyrtingar fyrir gesti, tæknirými fyrir keppnisvöll, æfingasalur, búningsklefi fyrir dómara, búningsklefi fyrir iðkendur/keppendur, aðstaða fyrir blaðamenn og söluafgreiðsla.
  • Á milli stúkumannvirkis og núverandi íþróttahúss verður reist um 1.600 fermetra félagsaðstaða sem hýsir m.a. búningsklefa og júdósal.
  • Með nýrri félagsaðstöðu verður til ný aðkoma með anddyri á norður- og suðurhliðum húss sem tengir saman núverandi íþróttahús KA og nýtt stúkumannvirki við aðalvöll.
  • Á jarðhæð félagsaðstöðunnar verða sex búningsklefar, afgreiðsla og móttaka, salerni, kaffistofa starfsmanna, stjórnun fyrir mannvirkið og velli, tæknirými og geymslur auk lyftu milli hæða. Á efri hæð er gert ráð fyrir júdósal í fullri stærð, snyrtingum, tæknirýmum, skrifstofu fyrir KA, tvískiptum félagssal og eldhúsi.
  • Verklok fyrir keppnisvöllinn sjálfan, þ.e.a.s. gervigrasið sjálft, eru áætluð eftir nokkrar vikur - áður en árlegt N1 mót KA fyrir 5. flokk fer fram. Verklok vinnu við félagsaðstöðu og stúku eru áætluð í árslok 2028.
  • Frágangi á lóð félagssvæðisins á að ljúka árið 2030.
  • Framkvæmdirnar eru á vegum Akureyrarbæjar sem stendur straum af kostnaði við þær og teljast mannvirkin eign sveitarfélagsins að framkvæmdum loknum.
  • KA tekur þátt í verkefninu með vinnu við ýmis verkefni sem tengjast innréttingu á efri hæð félagsaðstöðu auk kaupa á búnaði í eldhús og félagssal á sömu hæð.
  • Áætlaður kostnaður við keppnisvöllinn, stúkumannvirkið og félags- og búningsaðstöðuna er rúmlega 2,6 milljarðar króna á núverandi verðlagi sem fyrr segir. 

Meðfylgjandi myndir sýna aðalvöll KA og aðkomuna að svæðinu eftir að uppbyggingunni lýkur.