Fara í efni
Íþróttir

Íshokkíkrakkar úr SA hraðir á skautunum

Þrír hraðir íshokkístrákar úr SA. Víkingur Kári Hrafnsson, Jónas Valdimar Sigurbjörnsson og Garðar Breki Helgason. Á myndina vantar Berglindi Huld Ríkharðsdóttur, en faðir hennar tók við viðurkenningu fyrir hennar hönd.

Skautasamband Íslands og Íshokkísamband Íslands hafa saman staðið að verkefninu Hraðasti skautarinn á Íslandi 2026 þar sem krakkar úr öllum deildum skautafélaga hafa tekið þátt í tímatökum. Akureyringar eiga þar skautakrakka í fremstu röð og þarf vart að koma á óvart.

Krakkar í 2014 árgangnum skautuðu þrjá 111 metra hringi og var bæði keppt um hraðasta hringinn og besta samanlagðan tíma á 333 metrunum.

Í keppninni um hraðasta hringinn deildi Jónas Valdimar Sigurbjörnsson frá íshokkídeild Skautafélags Akureyrar efsta sætinu með Steinunni Margréti Haraldsdóttur listskautara úr Fjölni. Bæði skautuðu þau 111 metra hringinn á 13,33 sekúndum. 

Annar keppandi frá íshokkídeild SA, Víkingur Kári Hrafnsson, vann titilinn Hraðasti skautarinn á þremur hringjum, en hann skautaði 333 metrana á 42,69 sekúndum.

Í eldri flokknum, árgöngum 2012 og 2013 átti Garðar Breki Helgason frá íshokkídeild SA hraðasta 111 metra hringinn, sem hann skautaði á 12,75 sekúndum, en Garðar Breki átti einnig næstbesta hringinn, 13,16 sekúndur. Berglind Huld Ríkharðsdóttir, einnig frá íshokkídeild SA, varð í 3. sætinu á 111 metra hring á tímanum 13,76 sekúndur, en á milli Akureyringanna var Ævar Funi Dan Ingólfsson úr Fjölni á 13,60 sekúndum.

Garðar Breki átti ekki aðeins tvo hröðustu hringina heldur einnig besta samanlagða tímann á 333 metrunum, sem hann skautaði á 36,57 sekúndum, og átti jafnframt næstbesta tímann á þremur hringjum, 37,08 sekúndur. Berglind Huld varð önnur á 333 metrunum, skautaði á 39,45 sekúndum. 

Áframhald næsta vetur

Verkefnið hefur sýnt fram á framfarir skautaranna því flestir þátttakendur fóru í tvær mælingar yfir veturinn, í október-nóvember í fyrrahaust og svo aftur núna í apríl-maí. Fram kemur í frétt Skautasambandsins að niðurstöðurnar sýni að margir keppendur hafi bætt sig verulega og hafi verkefnið notið vinsælda meðal ungra skautara sem freistuðu þess að hljóta titilinn Hraðasti skautarinn. Þátttakendur í verkefninu eru fæddir á árunum 2012-2014.

Framhald verður á verkefninu og gefst skautakrökkum kostur á að keppa um titilinn Hraðasti skautarinn 2027.