Golf: Þrettán frá GA á Íslandsmótinu
Þrettán keppendur frá Golfklúbbi Akureyrar (GA) eru meðal 132 bestu kylfinga landsins á Íslandsmótinu í höggleik sem hefst í dag. Leikið er á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur og stendur mótið yfir fram á sunnudag.
Í kvennaflokki á GA þrjá fulltrúa af 40 keppendum. Andrea Ýr Ásmundsdóttir er þeirra reynslumest og er í 10. sæti í forgjafarröðinni hjá konunum. Samkvæmt áliti sérfræðinga er talið líklegast að Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili og Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur muni berjast um Íslandsmeistaratitilinn.
Keppendur GA í kvennaflokki:
- Andrea Ýr Ásmundsdóttir
- Björk Hannesdóttir
- Lilja Maren Jónsdóttir
Í karlaflokki eru 10 keppendur af 92 frá GA. Fyrirfram má búast við að Veigar Heiðarsson eigi mesta möguleika af þeim til að blanda sér í toppbaráttuna en hann náði mjög góðum árangri á Íslandsmótinu í fyrra og hafnaði þá í 3. sæti. Þrátt fyrir ungan aldur er Veigar einna reynslumestur GA-strákanna því flestir hinna í liðinu eru ennþá yngri! Veigar er ellefti í forgjafarröðinni í karlaflokknum en Íslandsmeistarinn frá í fyrra, Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur, er með lægstu forgjöfina. Hann er í hópi þeirra sem talið er að muni helst berjast um titilinn í ár, ásamt Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Aroni Snæ Júlíussyni úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.
Keppendur GA í karlaflokki:
- Arnar Freyr Viðarsson
- Ágúst Már Þorvaldsson
- Barri Björgvinsson
- Hafsteinn Thor Guðmundsson
- Mikael Máni Sigurðsson
- Maron Björgvinsson
- Óskar Páll Valsson
- Patrekur Máni Ævarsson
- Valur Snær Guðmundsson
- Veigar Heiðarsson
Eftir fyrstu tvo keppnisdagana verður skorið niður í keppendahópnum í báðum flokkum um helming og þeir kylfingar sem komast gegnum niðurskurðinn halda áfram keppni á laugardag og sunnudag.
Hægt er að fylgjast með gangi mála á Íslandsmótinu á vefsíðu Golfsambands Íslands og samfélagsmiðlum sambandsins, auk þess sem RUV sýnir beint frá mótinu á föstudag, laugardag og sunnudag.