Íþróttir
Garðar bætti sig og fékk brons í Mónakó
31.05.2026 kl. 17:00
Garðar Atli Gestsson lengst til hægri á verðlaunapallinum í Mónakó í gær. Skjáskot úr vefútsendingu evrópska frjálsíþróttasambandsins.
Spjótkastarinn Garðar Atli Gestsson úr Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) kastaði 65,35 metra – sem er persónulegt met – og varð í þriðja sæti á Áskorendamóti Evrópu í Mónakó í gær. Mótið nefndist áður Smáþjóðameistaramót Evrópu, enda eru þátttakendur frá smáþjóðum – fámennum löndum álfunnar, en nafninu hefur nú verið breytt; kallast Europian Challengers Cup á ensku.
UFA átti tvo fulltrúa í 14 manna landsliðshópi Íslands á mótinu, Tobias Þórarinn Matharel keppti í langstökki og í boðhlaupi. Þetta var frumraun beggja með landsliði fullorðinna.
Garðar er nýorðinn 17 ára en árangur hans í Mónakó í gær er ekki ýkja langt frá lágmarki fyrir heimsmeistaramót 20 ára og yngri sem fram fer í Bandaríkjunum í ágúst; lágmarkið fyrir HM er 68,50 m.
- Vert er að geta þess að kast Garðars í gær er annar besti árangur Evrópubúa í flokki 18 ára og yngri á þessu ári. Aðeins Antonio Di Palma frá Ítalíu hefur kastað lengra, 69,11 m á móti í heimalandinu í febrúar.
Amiz Papazi frá Svartfjallalandi sigraði í spjótkastinu í Mónakó í gær, kastaði 70,07 m, og annar varð Andrian Mardara frá Makedóníu - hann kastaði lengst 68,54 m.
Tobias Þórarinn Matharel hafði í 10. sæti í langstökki í Mónakó, stökk lengst 6,57 m og hljóp fyrsta sprett í boðhlaupssveit Íslands sem hafnaði í sjötta sæti.

Á verðlaunapallinum í Mónakó í gær. Frá vinstri: Andrian Mardara frá Makedóníu, Amiz Papazi frá Svartfjallalandi og Garðar Atli Gestsson.