Fara í efni
Íþróttir

Freydís Jóna og Jakob valin íþróttafólk SA

Íþróttafólk SA 2023. Jakob Ernfelt Jóhannesson og Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir. Mynd: sasport.is.

Skautafélag Akureyrar heiðraði í gær íþróttafólk ársins úr sínum röðum. Það voru listkautakonan Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir og íshokkímarkvörðurinn Jakob Ernfelt Jóhannesson sem hlutu þessa nafnbót hjá SA fyrir árið 2023. Þau eru bæði tilnefnd af Skautafélagi Akureyrar fyrir valið á íþróttafólki Akureyrar sem verður kunngjört í lok mánaðarins.

Frá því er sagt í frétt Skautafélagsins að Freydís var stigahæst skautara hjá listskautadeild SA árið 2023. Hún vann til silfurverðlauna á Íslandsmeistaramótinu 2023. Á erlendri grundu keppti hún á Eyof (European Youth festival) sem fram fór í Friouli á Ítalíu þar sem hún hafnaði hún í 27. sæti og í haust tók hún þátt á Diamond Spin í Katowice í Póllandi fyrir Íslandshönd þar hafnaði hún í 15. sæti.

Í umsögn SA segir að Jakob hafi spilað stórt hlutverk í liði SA Víkinga sem urðu deildarmeistarar á árinu og náðu þeim eftirtektarverða árangri að vinna alla deildarleikina nema á tímabilinu. Jakob var lykilmaður í þessum árangri en hann var með markvörslu upp á 94,5% á tímabilinu sem er eitt hæsta hlutfall markvörslu sem nokkur markvörður hefur náð frá upphafi deildarkeppninnar á Íslandi. Jakob spilaði fjóra landsleiki með íslenska landsliðinu á HM á Spáni og átti stóran þátt í frábærum sigri Íslands á Ástralíu þar sem hann var valinn maður leiksins. Jakob er með hæstu markvörsluprósentu allra markvarða í deildinni á núverandi tímabili og lið SA Víkinga var ósigrað fram að áramótum og tapaði ekki deildarleik með Jakob í markinu á öllu árinu 2023.