Fótbolti og fjallahjólreiðar
Knattspyrna og hjólreiðar eru á íþróttadagskrá vikunnar. Akureyrarliðin í Bestu deildunum eiga öll leiki, Þór/KA á fimmtudag og karlaliðin á sunnudag, KA heima og Þór úti. Um helgina fer einnig fram fjallahjólreiðakeppni á vegum Hjólreiðafélags Akureyrar og Hjólreiðasambands Íslands.
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ - fótbolti
Keppni í Bestu deild kvenna í knattspyrnu fer aftur af stað í vikunni eftir hlé sem var gert vegna þátttöku U19 landsliðsins í lokamóti EM. Nú er hoppað yfir eina umferð og komið að 11. umferð mótsins, en 10. umferðin sem átti að spilast í lok júní var færð aftur fyrir mótið og verður spiluð í byrjun september. Þór/KA tekur á móti Grindavík/Njarðvík á fimmtudagskvöld. Þór/KA færði sig úr botnsætinu upp í 9. sætið með sigri í síðustu umferð, er nú með sex stig úr niu leikjum. Grindavík/Njarðvík er í 6. sæti deildarinnar með 12. stig.
- Besta deild kvenna, 11. umferð
Þórsvöllur (VÍS völlurinn – gervigras á Ásnum), kl. 19:15
Þór/KA - Grindavík/Njarðvík
Fyrri leik liðanna sem fram fór í Njarðvík í lok apríl lauk með dramatískum hætti, sigurmarki heimaliðsins eftir hornspyrnu á lokamínútu leiksins og niðurstaðan 2-1 Grindavík/Njarðvík í vil.
SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ - fótbolti
Eftir sex tapleiki í röð er KA nú í 10. sæti Bestu deildar karla í knattspyrnu með tíu stig, tveimur stigum meira en FH og Þór sem sitja í fallsætunum. KA tekur á móti ÍA næsta sunnudag. ÍA er sætinu fyrir ofan KA með 15 stig, en Skagamenn hafa tapað þremur síðustu leikjum sínum.
- Besta deild karla, 14. umferð
KA-völlur (Greifavöllurinn sunnan við KA-heimilið – gervigras), kl. 18
KA - ÍA
Þessi lið gerðu 1-1 jafntefli þegar þau mættust í Akraneshöllinni í 3. umferð deildarinnar í apríl.
- - -
Þegar 14. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu hefst er Þór í 12. sætinu með átta stig, jafnmörg stig og FH en lakari markatölu. Fram er í 3. sæti deildarinnar með 26 stig að loknum 12 leikjum, en 13. umferð mótsins lýkur í kvöld þegar Fram sækir Keflvíkinga heim. Næsta sunnudag mætast Fram og Þór á heimavelli Fram.
- Besta deild karla, 14. umferð
Lambhagavöllurinn í Úlfarsárdal kl. 18
Fram - Þór
Þór vann fyrri leik liðanna í 3. umferðinni, í fyrsta leik liðsins á nýjum gervigrasvelli í apríl, 1-0. Það er annar af tveimur sigurleikjum Þórs í deildinni hingað til og aðeins annar af tveimur tapleikjum Fram í mótinu til þessa.
FÖSTUDAGUR, LAUGARDAGUR, SUNNUDAGUR, 17.-19. JÚLÍ - fjallahjólreiðar
Hjólreiðafélag Akureyrar stendur fyrir fjallahjólreiðahelgi 17.-19. júlí í samstarfi við Greifann. Hjólað er í Hlíðarfjalli og í Kjarnaskógi.
- Föstudagur 17. júlí kl. 18
Ungdúró HFA - Laugardagur 18. júlí kl. 13
Enduro HFA - Sunnudagur 19. júlí kl. 13
Fjallabrun HFA
Upplýsingar um keppnisgreinarnar og skráning eru á vef Hjólreiðasambands Íslands - sjá hér.