Eitt Þórsstig eftir óheppni og klaufaskap

Þórsarar urðu að sætta sig við eitt stig þegar þeir fengu ÍR-inga í heimsókn í gær í Lengjudeildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu, þrátt fyrir að vera einum fleiri í nærri klukkutíma. Liðin skildu jöfn í Boganum, 1:1, Þórsarar fengu færi til að skora meira en þótt ÍR-ingar væru eðlilega mikið í vörn voru þeir reyndar líka nálægt því í tvígang að bæta við marki; fengu dauðafæri en Aron Birkir Stefánsson varði frábærlega í bæði skiptin.
ÍR er á toppnum að loknum sjö umferðum með 15 stig, Njarðvík er með 13 og síðan koma HK, Þór og Þróttur með 11.
_ _ _
ÓTRÚLEGUR KAFLI
Litlu munaði að Þór skoraði þegar nærri 17 mín. voru liðnar, eftir að dæmd var aukaspyrna á ÍR rétt utan við vítateigshornið hægra megin. Brotið var á Ibrahima Balde eftir að hann plataði tvo ÍR-inga upp úr skónum.
Aron Ingi Magnússon tók aukaspyrnuna: sendi boltann hárnákvæmt inn á markteig, Balde náði föstum skalla en Vilhelm markvörður ÍR varði boltann í þverslá. Þórsarar heimtuðu víti þegar Clement Bayiha féll í teignum þegar hann freistaði þess að ná boltanum en erfitt var að sjá hvort þeir hefðu eitthvað til síns máls.
Boltinn barst aftur til Arons Inga sem hugðist senda inn í teig á ný, varnarmaður slæmdi fæti í boltann þannig að hann skaust meðfram vítateigslínunni, Sigurður dómari Þrastarson bakkaði til að vera ekki fyrir, Þórsarinn Bayiha virtist hætta við að taka boltann því hann lægi betur fyrir samherja hans, Atla Þór Sindrasyni, en þá vildi ekki betur til en svo að dómarinn var fyrir Atla, þeir rákust saman og Þórsarinn datt. ÍR-ingurinn Arnór Sölvi Harðarson fékk boltann óvænt á silfurfati við eigin vítateig, tók á rás og linnti ekki látum fyrr en við hinn enda vallarins. Skoraði þá með föstu skoti nálægt hægra markteigshorninu.
ÍR-ingurinn var þó ekki á auðum sjó en varnarmenn Þórs höfðu einfaldlega ekki roð við honum. Frábærlega gert hjá Arnóri Sölva en fádæma óheppni eða klaufagangur sem olli því að hann fékk tækifæri til þess arna. – Hér má sjá skjáskot af þessum afdrifaríku augnablikum, úr útsendingu Livey. Örin bendir á boltann þegar Aron Ingi hugðist spyrna fyrir markið öðru sinni.
- Hlutirnir gerðust hratt: Þegar Balde skallaði að marki sýndi vallarklukan 16 mín. og 49 sek. Þegar Sigurður og Atli Þór rákust saman var hún 16:57 og boltinn lá í Þórsmarkinu 12 sekúndum síðar – þegar 17 mín. og 9 sek. voru liðnar skv. vallarklukkunni.
_ _ _
GRÓFT BROT – RAUTT SPJALD
Fimm sekúndur liðu frá því Þórsarar byrjuðu á miðju eftir mark Arnórs Sölva þar til skoskur fyrirliði ÍR, Marc Mcausland, braut svo gróflega af sér að Sigurður dómari stakk hendinni umsvifalaust í rassvassann og sótti rauða spjaldið. Vísaði Skotanum af velli. Sigurður var skammt frá atvikinu og var viss í sinni sök. Boltanum var rennt frá miðjupunktinum aftur til Arons Birkis markvarðar, hann spyrnti alla leið yfir á miðjan vallarhelming ÍR þar sem Mcausland og Ibrahima Balde stukku upp og ÍR-ingurinn rak olnbogann af krafti í höfuð Þórsarans. Atvikið sést vel á mynd Ármanns Hinriks hér að neðan.
_ _ _
- Áður en ÍR skoraði fékk Þór eitt dauðafæri. Mjög góð sending bakvarðarins Vilhelms Ottós af vinstri kanti rataði beint á koll Clement Bayiha sem var óvaldaður á markteignum en fastur skalli hans fór naumlega framhjá markinu.
- Bayiha fékk annað ákjósanlegt færi til að skora á 38. mín. Þeir Balde prjónuðu sem laglega í gegnum vörn ÍR-inga, Bayiha komst inn undir markteig en skaut í stöng og framhjá.
Þórsarar náðu fleiri álitlegum sóknum í fyrri hálfleik, áttu nokkur skot en oftar en ekki voru síðustu sendingar svo ónákvæmar að hvimleitt var á að horfa. Það sama var of oft upp á teningnum í seinni hálfleik.
- Clement Bayiha komst enn í gott færi þegar tæpur klukkutími var liðinn en skot hans úr miðjum vítateig fór rétt framhjá.
- Skömmu síðar náðu ÍR-ingar sjaldgæfri skyndisókn, Hákon Dagur Matthíasson, fékk sannkallað dauðafæri en Aron Birkir varði snilldarlega.
ÞÓRSARAR JAFNA
Útherjinn Clement Bayiha var sprækur í leiknum og það var hann sem jafnaði loks fyrir Þór á 73. mínútu. Aron Ingi Magnússon, sem einnig var áberandi í Þórsliðinu, skaut að marki utan vítateigs, Vilhelm Þráinn varði en hélt ekki boltanum heldur sló hann til hliðar. Þangað skeiðaði Bayiha fyrstur allra og sendi boltann í netið frá vinstra markteigshorninu. Langþráð mark eftir að Bayiha hafði verið nokkrum sinnum nálægt því að skora.
_ _ _
ORRI AF VELLI
Fjórum mínútum eftir jöfnunarmarkið var orðið jafnt í liðunum á ný. Dómarinn sýndi Orra Sigurjónssyni gula spjaldið fyrir að stugga við framherja í álitlegri stöðu og þar sem Orri hafði einnig fengið áminningu með gulu spjaldi í fyrri hálfleik fór rauða spjaldið á loft of Orri yfirgaf völlinn.
_ _ _
- Gestirnir fengu hættulegasta færið það sem eftir lifði leiks en Aron Birkir varði mjög vel í horn.
Þórsarar voru skiljanlega mikið með boltann í leiknum, einum fleiri eins lengi og raun ber vitni, þeir gerðu margt vel en gekk afleitlega að binda endahnút á sóknirnar. Hljóta að naga sig í handarbökin fyrir að nýta ekki fleiri færi.
ÍR-ingar vörðust af miklum móð, tókst það bærilega en þó ekki betur en svo að Þórsarar fengu töluvert af tækifærum til að skora.
- Mannmargt hefur verið á meiðslalista Þórs undanfarið og hann lengdist enn í gær. Framherjarnir Sigfús Fannar Gunnarsson og Atli Þór Sindrason fóru báðir meiddir af velli í fyrri hálfleik.
- Næsti leikur Þórs í deildinni er gegn Njarðvík á útivelli á laugardaginn kemur, 14. júní kl. 16:00.
- Þórsarar mæta svo liði Vestra á Ísafirði á miðvikudag í næstu viku, 18. júní, í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Sá leikur hefst kl. 17:30.