Fara í efni
Íþróttir

Blak: Sigur í gær og spennandi toppbarátta

Mynd af Facebook síðu KA

Kvennalið KA í blaki vann öruggan og næsta auðveldan sigur á Þrótti Fjarðabyggð í Neskaupstað í gær, 3-0, og á fyrir höndum spennandi baráttu um deildarmeistaratitilinn við HK í Kópavogi, sem tapaði fyrir Aftureldingu í gær.

Fyrsta hrinan í leik KA og Þróttar Fjarðabyggð var nokkuð jöfn framan af eða þar til KA skoraði fimm stig í röð og breytti stöðunni úr 9-8 í 14-8. Heimakonur minnkuðu muninn aftur í þrjú stig, en komust ekki nær og KA jók muninn jafnt og þétt út hrinuna, vann að lokum 25-14. Svipað var uppi á teningnum í annarri hrinu. Eftir að jafnt var 7-7 komu sex stig í röð hjá KA og sigurinn aldrei í hættu eftir það, lokatölur 25-13. KA náði svo nokkuð snemma góðri forystu í þriðju hrinunni og vann hana 25-12. Öruggur og mikilvægur sigur í höfn, 3-0, og mikilvægt að tapa ekki hrinu því hver hrina og hvert stig skiptir máli á lokasprettinum. Áður en kemur að lokaleikjunum tekur HK á móti Þrótti Fjarðabyggð og KA tekur á móti Völsungi.

KA er nú aðeins einu stigi frá toppsætinu, er með 43 stig og HK með 44 þegar bæði lið eiga eftir þrjá leiki. Þar af eru tveir innbyrðis leikir þessara liða í lokaumferðum deildarkeppninnar, í Kórnum í Kópavogi. Þar mun ráðast hvort liðið vinnur deildarmeistaratitilinn og tryggir sér oddaleiksrétt í úrslitakeppninni.

Endanleg röð liðanna ræðst auðvitað af stigum, en verði lið jöfn að stigum er það mismunur á unnum og töpuðum hrinum sem gildir. Þar hefur HK vinninginn sem stendur, með 44 hrinur í plús, 47-13, en KA er með 41 hrinu í plús, 46-15. 

Staðan í deildinni.

Leikskýrslan.