Fara í efni
Íþróttir

Blak: KA vann öruggan sigur á Völsungi

Sannfærandi sigri á Völsungi fagnað. Mynd af Facebook-síðu KA.

KA gerði góða ferð til Húsavíkur í gær þegar liðið mætti Völsungi í efstu deild kvenna í blaki, Unbroken-deildinni. KA vann öruggan 3:0 sigur og er efst í deildinni að tveimur umferðum loknum.

Í fyrstu hrinu var nánast um einstefnu að ræða og KA vann þar sannfærandi sigur, 25:11. Heimastúlkur bitu meira frá sér í annarri hrinu, sem var nokkuð jöfn framan af. KA náði þó tökum á leiknum þegar á leið og kláraði hrinuna 25:16. Í síðustu hrinunni var KA alltaf skrefi á undan og kláraði svo leikinn með því að gera 9 síðustu stigin og vinna hrinuna 25:11.

KA hefur því unnið báða leiki sína það sem af er móti án þess að tapa hrinu. Um aðra helgi kemur lið HK Ýmis norður og leikur tvo leiki við KA en liðið er skipað ungum og efnilegum leikmönnum úr blakdeild HK.