Blak: HK vann KA og varð Íslandsmeistari
KA-stúlkurnar þurftu að bíta í það súra epli að tapa þriðju úrslitaviðureigninni gegn HK um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna í Kópavogi í kvöld. Eftir að hafa unnið fyrstu tvær hrinurnar tókst KA ekki að láta kné fylgja kviði og HK vann þrjár næstu hrinur.
HK hafði unnið fyrstu tvær viðureignir liðanna og þurfti því aðeins einn sigur í viðbót til að hampa Íslandsmeistaratitlinum. KA-liðið kom ákveðið til leiks, staðráðið í að vinna leikinn og fá þar með fjórða leikinn á heimavelli. Eftir góða byrjun KA í fyrstu hrinu náði HK tökum á leiknum og virtist ætla að landa öruggum sigri. En í stöðunni 20:15 tók KA aftur við sér og náði að klára hrinuna 25:22 með góðum endaspretti.
Liðin skiptust á um að leiða í annarri hrinu en rétt eins og í þeirri fyrstu var það KA sem vann hrinuna eftir góðan endasprett. Lokatölur 28:26 og nú vantaði bara eina sigurhrinu til að klára leikinn. HK byrjaði betur í þriðju hrinunni og náði góðu forskoti, sem KA náði þó að vinna upp. En að þessu sinni héldu heimastúlkur haus og unnu hrinuna 25:22.
HK sterkara í oddahrinu - eins og í síðasta leik
HK jafnaði síðan leikinn með öruggum 25:13 sigri í fjórðu hrinu. Það þurfti því oddahrinu til að skera úr um hvort HK næði að tryggja sér titilinn eða KA að framlengja einvígið. Eftir jafna byrjun í oddahrinunni náði HK völdunum þegar á leið og Íslandsmeistaratitillinn var þeirra eftir 15:9 sigur í hrinunni og þar með 3:2 sigur í leiknum.
Sannarlega svekkjandi fyrir KA, sem þurfti að þola 3:2 tap annan leikinn í röð eftir að hafa unnið fyrstu tvær hrinurnar í þeim báðum. Þær þurfa því að horfa á eftir öllum stóru titlunum í fang HK en fyrir þetta einvígi var HK búið að hrifsa deildarmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn úr höndum KA.