Blak: Bæði KA-liðin unnu auðveldan sigur
Bæði kvenna- og karlalið KA tóku á móti Þrótti frá Neskaupstað í efstu deild í blaki í gær. Auðveldur 3:0 sigur vannst í báðum leikjum.
Þróttarstúlkur eru neðstar í kvennadeildinni og fyrirfram var kannski ekki búist við að KA myndi lenda í vandræðum í leiknum. Það gekk eftir og KA var með öll tök á leiknum þótt Þróttarar stæðu reyndar vel í heimastúlkum í annarri hrinu. Hrinurnar fóru 25:20, 25:20 og 25:14 og KA er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar, á eftir HK. Um næstu helgi fer KA suður og leikur gegn Reykjavíkur-Þrótti og Aftureldingu.
Karlarnir lentu í smávegis basli í fyrstu hrinunni í sinni viðureign og Þróttur leiddi hana lengst af. En KA náði að komast yfir í lokin og vinna nauman 25:23 sigur. Hins vegar var aldrei vafi um úrslitin í næstu tveimur hrinum, sem báðar unnust 25:16. Sem fyrr er allt í járnum í toppbaráttunni í deildinni og næstu leikir verða gríðarlega þýðingarmiklir. Þá kemur Afturelding norður og leikur tvisvar við KA en þessir leikir verða 28. febrúar og 1. mars.