Fara í efni
Íþróttir

Baldvin varði titilinn með miklum yfirburðum

Baldvin Þór Magnússon þegar hann varð Íslandsmeistari í 1500 m hlaupi á Akureyri í fyrrasumar. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Bald­vin Þór Magnús­son úr Ungmennafélagi Akureyrar varð Íslandsmeistari í 1500 metra hlaup í gær. Meistaramót Íslands fer fram í Kaplakrika í Hafnarfirði um helgina.

Aðstæður voru erfiðar í gær vegna vinds og þrátt fyrir að Baldvin hafi sigrað með yfirburðum var hann langt frá sínu besta. Hann hljóp vegalengdina á 4 mínútum 06,60 sekúndum og kom rúmri mínútu á undan næsta manni í mark. Íslandsmet Baldvins er 3:40,74 en í fyrra varð hann Íslandsmeistari á 4:01,20. Þá fór Meistaramótið fram á Akureyri og Baldvin keppti þá í fyrsta skipti á braut hér á landi. Hann flutti ungur með fjölskyldunni frá Akureyri til Bretlands, eins og margoft hefur komið fram á Akureyri.net, og síðustu ár hefur Baldvin verið búsettur í Bandaríkjunum þar sem hann stundar háskólanám og keppir í frjálsíþróttum.

„Maður var ekk­ert eft­ir tíma í dag þar sem það var svo mik­ill vind­ur. En ég er sátt­ur með hvernig hlaupið fór og það var sér­lega gam­an að fá að keppa á Íslandi í týpísku ís­lensku veðri. Þetta var fínt hlaup,“ sagði Baldvin við mbl.is eftir keppnina í gær. „Aðal­til­gang­urinn var bara að taka þátt og sýna sig aðeins á Íslandi.“

Baldvin sagðist hafa verið í basli í sumar vegna smávægilegra meiðsla og Covid. Hann væri því ekki í mkilli æfingu.