Fara í efni
Íþróttir

Arnór, Óðinn, Hafþór og Andri í 35 manna EM-hóp

Arnór Þór Gunnarsson, Andir Már Rúnarsson, Hafþór Vignisson og Óðinn Þór Ríkharðsson.

Óðinn Þór Ríkharðsson úr KA og Þórsararnir Arnór Þór Gunnarsson, sem leikur með Bergischer í Þýskalandi, Hafþór Vignisson, sem leikur með Stjörnunni, og Andri Már Rúnarsson, sem nú er á mála hjá Stuttgart í Þýskalandi,  eru í 35 manna hópi sem Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, valdi í dag. Hópinn skipa þeir leikmenn sem koma til greina á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar.

Hvorki Hafþór né Andri Már hafa leikið með A-landsliðinu. Arnór Þór og Hafþór voru báðir orðnir sjóaðir í meistaraflokki þegar þeir freistuðu gæfunnar annars staðar en Andri Már Rúnarsson, Sigtryggssonar, lék í yngri flokkum Þórs en fjölskyldan fluttist til Þýskalands þegar Rúnar var ráðinn þjálfari í landi. Andri Már hóf ferilinn undir styrkri stjórn þjálfarans Andra Snæs Stefánssonar, sem nú stjórnar Stelpunum okkar, Íslands- og bikarmeistarum KA/Þórs.

Hópurinn sem Guðmundur tilkynnti í dag er sem hér segir, í sviga fjöldi landsleikja og marka.

Markverðir
Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding (41/1)
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (236/16)
Daníel Freyr Andrésson, Guif (2/0)
Grétar Ari Guðjónsson, Cavial Nice (7/0)
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG Håndbold (25/1)

Vinstra horn
Bjarki Már Elísson, TBV Lemgo Lippe (82/230)
Hákon Daði Styrmisson, Gummersbach (6/23)
Orri Freyr Þorkelsson, Elverum (1/1)
Vignir Stefánsson, Valur (8/18)

Vinstri skytta
Aron Pálmarsson, Aalborg Håndbold (152/593)
Bjarni Ófeigur Valdimarsson, IFK Skövde HK (0/0)
Daníel Þór Ingason, Balingen-Weilstetten (34/9)
Einar Þorsteinn Ólafsson, Valur (0/0)
Elvar Ásgeirsson, Nancy (0/0)
Ólafur Andrés Guðmundsson, Montpellier Handball (133/266)
Óskar Ólafsson, Drammen (0/0)

Leikstjórnendur
Andri Rúnarsson, TVB 1898 Stuttgart (0/0)
Elvar Örn Jónsson MT Melsungen (46/120)
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (32/51)
Haukur Þrastarson, Vive Tauron Kielce (20/22)
Janus Daði Smárason, Frisch Auf Göppingen (49/69)

Hægri skytta
Hafþór Vignisson, Stjarnan (0/0)
Kristján Örn Kristjánsson, Pays d´Aix Universite Club (12/18)
Teitur Örn Einarsson, SG Flensburg-Handewitt (21/22)
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (56/150)
Viggó Kristjánsson, TVB 1898 Stuttgart (21/55)

Hægra horn
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club (120/341)
Finnur Ingi Stefánsson, Valur (1/0)
Óðinn Þór Ríkharðsson, KA (14/44)
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Tauron Kielce (39/86)

Línumenn
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (63/76)
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (13/14)
Heimir Óli Heimisson, Haukar (6/9)
Sveinn Jóhannsson, SönderjyskE Håndbold (12/24)
Ýmir Örn Gíslason, Die Rhein-Neckar Löwen (52/23)

Landsliðið kemur saman til æfinga á Íslandi 2. janúar nk. og leikur tvo vináttulandsleiki við Litháen á Ásvöllum í Hafnarfirði 7. og 9. janúar. Strákarnir okkar halda svo til Búdapest í Ungverjalandi þar sem liðið mun leika í B-riðli ásamt Portúgal, Hollandi og Ungverjalandi. Tvö efstu liðin komast áfram í milliriðil en hann fer einnig fram í Búdapest.

Leikir Íslands í riðlakeppni EM eru þessir:
14. janúar kl. 19:30 Portúgal – Ísland
16. janúar kl. 17:00 Ísland – Holland
18. janúar kl. 19:30 Ísland – Ungverjaland