Fara í efni
Fréttir

Vinningshafar fengu flugeldana í morgun

Glaðir vinningshafar! Frá vinstri: Lína Björg Sigurgísladóttir, Hákon Freyr Benediktsson sonur Línu Bjargar, Vésteinn Finnsson, Halla Björk Garðarsdóttir og Guðmundur Guðmundsson flugeldastjóri björgunarsveitarinnar Súlna. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þau sem duttu í lukkupottinn í flugeldaleik Akureyri.net fengu vinningana afhenta í morgun. Lesendur sýndu leiknum mikinn áhuga og kom ekki á óvart; alls tóku 3.276 þátt í flugeldaleiknum og fjórir voru dregnir út í gærkvöldi.

  • Lína Björg Sigurgísladóttir fékk skotkökuna Hallgerði Langbrók  – að verðmæti 11.300 kr.
  • Hallfríður Jóna Hauksdóttir fékk skotkökuna Top Gun – að verðmæti 14.400 kr.
  • Vésteinn Finnsson nældi sér í fjölskyldupakkann Tralla – að verðmæti 16.900 kr.
  • Halla Björk Garðarsdóttir fékk skotköku sem kallast Björgunarsveitarkappi  – kakan sú kostar hjá Súlum 19.900 kr.

Lína Björg, Vésteinn og Halla Björk mættu í höfuðstöðvar björgunarsveitarinnar Súlna í morgun og fengu vinningana, Hallfríður Jóna átti því miður ekki heimangangt en er þó að sjálfsögðu kominn með glaðninginn í hendur.

Akureyri.net þakkar öllum fyrir þátttökuna í þessum skemmtilega leik og óskar vinningshöfum innilega til hamingju!

Í höfuðstöðvum Súlna í morgun. Frá vinstri: Skapti Hallgrímsson ritstjóri Akureyri.net, Lína Björg Sigurgísladóttir, Hákon Freyr Benediktsson sonur Línu Bjargar, Vésteinn Finnsson, Halla Björk Garðarsdóttir og Guðmundur Guðmundsson flugeldastjóri björgunarsveitarinnar Súlna.