Fara í efni
Fréttir

Viltu vinna miða á námskeið Sverris?

Akureyringurinn Sverrir Ragnarsson, sem hefur í mörg ár unnið sem stjórnendaþjálfari í Bandaríkjunum, heldur námskeiðið Töfrarnir í aukaskrefinu í Hofi laugardaginn 7. janúar. Námskeiðin eru reyndar tvö þennan sama dag – annað fyrir unglinga, hitt fyrir fullorðna.

  • Lesendur Akureyri.net eiga þess nú kost að næla í miða á námskeiðið fyrir unglingana, 10 til 16 ára. Tilvalin gjöf handa unga fólkinu.
  • Það eina sem gera þarf til að taka þátt í leiknum er að líka við – „læka“– þessa frétt á Facebook. Þeir sem ekki hafa aðgang að Facebook geta í staðinn sent póst á skapti@akureyri.net og gefið upp nafn og símanúmer. Sex miðar eru í boði - sex heppnir verða dregnir út. Dregið verður í leiknum á miðvikudaginn.

Sverrir spurði, í viðtali við Akureyri.net á dögunum: „Hvaða árangri viltu ná í lífinu; í vinnu, skóla eða íþróttum? Ég vinn mjög mikið með það að fólk taki ábyrgð á eigin árangri; að það taki 100% ábyrgð á sjálfu sér, því þá er það undir því sjálfu komið hvernig það bregst við því sem getur gerst. Ég vinn líka mikið með sjálfstraust, og jákvæð viðhorf, hvernig það getur gert líf okkar betra.“

Hann spyr:

  • Viltu taka meiri ábyrgð á sjálfum þér?
  • Viltu hafa jákvæðara viðhorf?
  • Viltu fá meira sjálfstraust?
  • Viltu verða betri í að setja þér markmið?
  • Ertu fastur í þægindahringnum og vilt komast út úr honum?

Smellið hér til að lesa frétt Akureyri.net um námskeiðið: Sverrir og töfrarnir í aukaskrefinu

Smellið hér til að lesa viðtal Akureyri.net við Sverri: Maður verður að trúa á sjálfan sig