Fara í efni
Fréttir

Viltu vinna í flugelda? Dregið í leiknum í kvöld

UPPFÆRT KLUKKAN 22.15 – Dregið var í flugeldaleiknum í kvöld og búið er að ná sambandi við alla þá heppnu. Þeir fá glaðninginn afhentan í fyrramálið og eftir það verður upplýstir hverjir duttu í lukkupottinn! 

_ _ _

Akureyri.net bregður á leik í tilefni áramótanna eins og greint var frá í fyrradag: lesendum gefst tækifæri til þess að vinna glæsilegar vörur af flugeldamarkaði björgunarsveitarinnar Súlna!

Til þess að eiga möguleika á vinningi þarf einungis að líka við – „læka“– þessa frétt á Facebook, eða þá sem birtist á miðvikudaginn, og skrifa nafn einhvers vinar í athugasemdalínuna. Þá fer nafn þess sem „lækar“ í pott. Dregið verður úr nöfnum þeirra allra í kvöld og vinningarnir afhentir í fyrramálið.

Fjórir vinningar verða dregnir út - samtals að verðmæti 62.500 króna:

  • Hallgerður Langbrók – skotkaka að verðmæti 11.300 kr.
  • Top Gun – 15 skota kaka að verðmæti 14.400 kr.
  • Tralli – fjölskyldupakki að verðmæti 16.900 kr.
  • Björgunarsveitakappi – 64 skota kaka að verðmæti 19.900 kr.

Góða skemmtun!