Fara í efni
Fréttir

Varpa fram hugmynd um samfélagsgarð

„Stundum þarf ekki stórar framkvæmdir eða milljarðafjárfestingar til að gera bæinn okkar betri. Stundum þarf fyrst og fremst góða hugmynd, hentugt svæði og vilja til að prófa eitthvað nýtt.“

Þannig hefst grein Eyrúnar Gígju Káradóttur, sérfræðings hjá Umhverfis- og orkustofnun, sem akureyri.net birtir í dag. Eyrún Gígja varpar þar fram afar áhugaverðri hugmynd um samfélagsgarða sem „hafa verið byggðir upp víða með það að markmiði að nýta vannýtt svæði betur, skapa aðstæður fyrir meiri útiveru, efla tengsl fólks og bæta lífsgæði,“ eins og hún orðar það.

Svæðið við Mýrarveg sem Eyrún Gígja nefnir í greininni.

Fimm manna hópur vinnur saman að skýrslu um samfélagsgarða; auk Eyrúnar eru þar að verki Heiðrún Sigurðardóttir, forstöðumaður Matjurtagarða Akureyrar, Valur Þór Hilmarsson, forstöðumaður Lystigarðsins og tveir fullrúar stjórnar Félags eldri borgara á Akureyri, Fjóla Sigurðardóttir og Margrét Alfreðsdóttir.

Stefnt er að því að leggja skýrsluna fyrir bæjarstjórn og skorað verður á bæjaryfirvöld að dusta rykið af tillögum um slíkan garð, sem hún segir að áður hafi komið fram en ekki hlotið brautargengi, og skoða af alvöru hvort svæði við Mýrarveg sem Eyrún Gígja nefnir geti orðið tilraunasvæði fyrir slíkt verkefni. 

Margar flugur í einu höggi

Möguleikinn til að leigja garð til að rækta er nú þegar til staðar á vegum Akureyrarbæjar hjá Gömlu gróðrarstöðinni, en hugmyndin um samfélagsgarð snýst ekki bara um að finna stað fyrir ræktun, hann snýst um fólkið sem þangað sækir og nærumhverfið; mikið sé talað um mikilvægi þess að vinna gegn félagslegri einangrun, um lýðheilsu, hreyfingu, sjálfbærni, umhverfismál og mikilvægi þess að eldri borgarar geti verið virkir þátttakendur í samfélaginu, skrifar Eyrún og bætir við:

„Samfélagsgarður getur sameinað alla þessa þætti á einum stað.“

Einföld hugmynd

Hugmyndin er einföld, segir Eyrún Gígja. „Í stað þess að fólk rækti hvert í sínu horni er skapaður sameiginlegur vettvangur þar sem einstaklingar, fjölskyldur og hópar geta ræktað matjurtir og blóm, hist og deilt reynslu og þekkingu.“

Eyrún Gígja skrifar:

  • Byrjum smátt. Fáum íbúana að borðinu. Prófum okkur áfram. Lærum af reynslunni og leyfum verkefninu að vaxa ef samfélagið tekur því vel.
  • Kannski verður til staður, þar sem eldri íbúi miðlar þekkingu sem annars hefði glatast. Þar sem nýr íbúi eignast sinn fyrsta kunningja í hverfinu. Þar sem fólk sest niður á sumarkvöldi, horfir yfir garðinn og spjallar við nágranna sína.

Grein Eyrúnar Gígju: Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?