Undanúrslit KA/Þórs í bikar, fótbolti og blak
Í dag er stóri dagurinn, eða sá næststærsti, hjá handboltaliði KA/Þórs á þessari leiktíð. Undanúrslitaleikir í bikarkeppni kvenna í handbolta eru í kvöld þar sem Akureyrarliðið mætir Val. Leikið er í Hafnarfirði og leikurinn verður sýndur á RÚV 2. Karlalið Þórs í knattspyrnu og kvennalið KA í blaki eiga útileiki í dag.
Þórsarar í baráttu um efsta sætið
Karlalið Þórs í knattspyrnu tyllti sér í toppsæti riðils 2 í A-deild Lengjubikars karla með sigri á Völsungi í liðinni viku og er með sjö stig á toppnum, en Skagamenn komu sér upp að hlið Þórsara á sunnudag, einnig með sigri á Völsungi. Þórsarar hafa leikið þrjá leiki, en Skagamenn fjóra. Í dag er komið að heimsókn í Mosfellsbæinn þar sem Þór mætir liði Aftureldingar. Valur er eina liðið í riðlinum sem ekki hefur tapað stigum, er með sex stig úr tveimur leikjum. Afturelding er einnig með sex stig, en úr þremur leikjum.
- Lengjubikar karla í knattspyrnu, A-deild
Varmárvöllur kl. 17:00
Afturelding - Þór - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Lokaspretturinn í blakinu
Kvennalið KA í blaki á í harðri baráttu við HK um deildarmeistaratitilinn í Unbroken-deildinni þegar liðin eiga bæði fjóra leiki eftir. HK stendur betur að vígi, er með 44 stig, en KA er með 40 stig. KA sækir Þrótt Fjarðabyggð heim í dag, en á síðan eftir heimaleik gegn Völsungi og tvo útileiki gegn HK í lokaumferðum deildarinnar.
- Unbroken-deild kvenna í blaki
Íþróttamiðstöðin í Neskaupstað kl. 18:30
Þróttur Fjarðabyggð - KA
Þróttur Fjarðabyggð er í neðsta sæti deildarinnar með eitt stig eftir 15 leiki. Liðin hafa mæst þrisvar í deildinni í vetur. KA vann báðar viðureignirnar á heimavelli 3-0, og 3-2 þegar liðin mættust í Neskaupstað.
Kemst KA/Þór í úrslitaleikinn?
Í kvöld er komið að undanúrslitum í bikarkeppni kvenna í handbolta. Leikið er að Ásvöllum í Hafnarfirði. Fyrri undanúrslitaleikurinn er viðureign Hauka og Fram, en kl. 20:15 er komið að KA/Þór að takast á við firnasterkt lið Vals.
- Powerade-bikar kvenna í handbolta, undanúrslit
Ásvellir í Hafnarfirði kl. 20:15
Valur - KA/Þór - Útsending: Beint á RÚV 2
Opin dagskrá
Valur er á toppi Olísdeildarinnar með 32 stig úr 18 leikjum, hefur aðeins tapað tveimur leikjum í deildinni í vetur. Það skiptir ekki endilega máli þegar í bikarleiki er komið, þar getur allt gerst og auðvitað von Akureyringa að úr verði bikarævintýri. Valur vann báðar viðureignir þessara liða í deildinni í vetur, 30-23 á Akureyri í desember og 31-16 syðra í janúar.
- Nánar verður fjallað um bikarkeppnina seinna í dag.