Fara í efni
Fréttir

505 deildaleikir: Aron fram úr Eiði Smára

Aron Einar og Eiður Smári Guðjohnsen í síðasta landsleik Eiðs, á EM 2016 - Aron í leik með Þór gegn KA 2006 - í búningi Cardiff á Englandi og með Þór á ný sumarið 2024. Myndir: Skapti Hallgrímsson, Þórir Tryggvason og af Instagram reikningi Arons Einars.

Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í fótbolta, náði stórum áfanga á ferlinum í gærkvöld þegar hann lék með liði sínu Al Gharafa í Katar gegn Shamal í toppslag í úrvalsdeildinni þar í landi.

Aron lék þar sinn 505. deildaleik á ferlinum og er þar með orðinn fjórði leikjahæsti Íslendingurinn frá upphafi. Með þessum leik fór hann fram úr Eiði Smára Guðjohnsen, samherja sínum í íslenska landsliðinu um árabil, sem lék 504 deildaleiki á sínum farsæla ferli.

Um leið er Aron kominn nálægt þremur leikjahæstu Íslendingunum og á möguleika á að fara fram úr þeim öllum á næstu 10-12 mánuðunum. Hann gæti því slegið leikjametið sem Arnór Guðjohnsen hefur átt frá árinu 1999 þegar hann fór fram úr þáverandi methafa, Ásgeiri Sigurvinssyni, sem lék 481 deildaleik á sínum ferli.

Fyrirliðabandið! Síðasti landsleikur Eiðs Smára Guðjohnsen – lokaleikur Íslands á EM í Frakklandi 2016. Hann kom inná þegar nokkrar mínútur voru eftir og Aron Einar færði honum fyrirliðabandið í heiðursskyni. Myndir: Skapti Hallgrímsson


Þessir eru nú leikjahæstir og þeir fimm Íslendingar sem hafa náð að spila 500 deildaleiki á ferlinum:

  • 523 Arnór Guðjohnsen
  • 520 Ívar Ingimarsson
  • 512 Hermann Hreiðarsson
  • 505 Aron Einar Gunnarsson
  • 504 Eiður Smári Guðjohnsen

Aron hefði hæglega getað verið búinn að ná efsta sætinu en hann missti úr heilt tímabil með Al Gharafa, 2024-25, þegar hann var ekki gjaldgengur með liðinu í deildakeppninni í Katar.

Á yfirstandandi tímabili hefur Aron leikið 13 af 16 leikjum Al Gharafa í deildinni, 10 þeirra í byrjunarliðinu, og getur bætt við sex leikjum til vorsins. Hann er nú sjö leikjum á eftir Hermanni Hreiðarssyni og gæti því skákað honum, Ívari og Arnóri á næsta tímabili.

Töpuðu dýrmætum stigum

En Aron, sem var í byrjunarliðinu og lék í 76 mínútur, gat ekki fagnað í leikslok gegn Shamal því Al Gharafa tapaði þessum mikilvæga leik á heimavelli, 1:0, og þar með höfðu liðin sætaskipti í öðru og þriðja sæti deildarinnar. Þegar sex umferðum er ólokið er Al Sadd með 35 stig, Shamal 31 og Al Gharafa 31 en þessi þrjú lið eru í baráttunni um meistaratitilinn ásamt Al Rayyan sem er með 28 stig í fjórða sætinu.

Aron lék í vetur alla átta leiki Al Gharafa í Meistaradeild Asíu en þar mátti Al Gharafa mátti sætta sig við að sitja eftir í sínum riðli og missti af úrslitakeppninni. Liðið er komið í átta liða úrslit bikarkeppninnar í Katar en er úr leik í deildabikarnum.

Aron hefur leikið stærstan hluta sinna deildaleikja í ensku B-deildinni með Cardiff og Coventry, samtals 344 leiki. Þá hefur hann leikið 92 leiki í efstu deild í Katar með Al Gharafa og Al Arabi, 51 með Cardiff í ensku úrvalsdeildinni, 17 með Þór í íslensku 1. deildinni og einn leik með AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni.

Til vinstri: Lárus Orri Sigurðsson, þarna leikmaður West Bromwich Albion, skallar að marki Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.

Til hægri, Birkir Bjarnason ræðir við dómarann Damir Skomina undir lok eins eftirminnilegasta landsleiks Íslands frá upphafi, sigrinum á Englandi í Nice, í 16 liða úrslitum Evrópukeppninnar árið 2016. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Leikjahæsti Akureyringurinn

Aron er um leið leikjahæsti Akureyringurinn í deildakeppni frá upphafi og einn af þremur knattspyrnumönnum úr bænum sem hafa náð 400 deildaleikjum. Hinir eru Birkir Bjarnason sem lék 471 leik og lagði skóna á hilluna síðasta sumar, og Lárus Orri Sigurðsson sem lék 449 deildaleiki á ferlinum.

Þá er Dalvíkingur í sjöunda sætinu yfir þá leikjahæstu frá upphafi en Heiðar Helguson lék 492 deildaleiki á sínum ferli og Húsvíkingurinn Pálmi Rafn Pálmason er áttundi með 487 leiki. Reyndar geta Húsvíkingar líka gert tilkall til að eiga methafann, Arnór Guðjohnsen, sem hafði leikið fyrir Völsung áður en hann flutti tæplega níu ára gamall til Reykjavíkur.

Lista yfir alla íslenska knattspyrnumenn sem hafa leikið 400 deildaleiki og fleiri má sjá í bókinni Íslensk knattspyrna 2025.