Fara í efni
Fréttir

Um 2.000 manna byggð í nýju hverfi

Akureyrarbær birti í dag drög að deiliskipulagi fyrir nýtt íbúðasvæði vestan Borgarbrautar; byggðin verður fyrir ofan Síðuhverfi í framhaldi af Giljahverfi.

„Markmiðið er að leggja grunn að hverfi með fjölbreyttum íbúðagerðum og grænum svæðum sem verður aðlaðandi búsetukostur,“ segir á vef Akureyrarbæjar.

  • Áætlað er að á svæðinu geti risið allt að 970 íbúðir á næstu árum og ætla má að fjöldi íbúa verði á bilinu 1.900 til 2.300.
  • Gert er ráð fyrir að íbúðir í fjölbýli verði um 77-80% samanborið við 20-23% í sérbýli sem þýðir að álíka mikið landsvæði fer undir fjölbýli og sérbýli.
  • Stefnt er að því að hefja uppbyggingu úr suðri vegna nálægðar við Síðuskóla þar sem svigrúm er til að fjölga nemendum.

Smellið hér til að skoða ítarleg kynningargögn um skipulagsvinnuna.

Grænt og vistvænt hverfi

  • Samkvæmt tillögu að deiliskipulagi er gert ráð fyrir að safngata liggi í gegnum íbúðasvæðið en húsagötur verði í flestum tilvikum botngötur til að hægja á umferð.
  • Lagt er til þétt net göngu- og hjólastíga um hverfið og að meginleiðir verði ekki meðfram safngötu til að skapa næði frá bílaumferð. Mikil áhersla er lögð á gott aðgengi að grænum svæðum og er gert ráð fyrir torgsvæði, leiksvæðum, sleðabrekku og matjurtagarði.
  • Sjálfbær þróun er lykilatriði samkvæmt tillögunni og birtist meðal annars í „blágrænum ofanvatnslausnum“ sem stefnt er að því að nota í hverfinu.
  • Markmið með „blágrænum ofanvatnslausnum“ er m.a. að koma ofanvatni niður í jarðveginn; ofanvatn er regnvatn og leysingarvatn sem rennur í fráveitur af húsþökum, götum, gangstéttum og öðru þéttu yfirborði. Markmiðið er einnig að minnka álag á fráveitukerfi, að tryggja heilbrigðari og sjálfbærari vatnsbúskap, auk þess minni mengun, betri vatnsgæði og grænna umhverfi.
  • Við enda botngatna er gert ráð fyrir snjósöfnunarsvæðum sem tengjast ofanvatnslausnum svo ekki þurfi að aka snjó burt eftir mokstur. Þá er lagt til að kvöð verði sett á lóðir fjölbýlishúsa um trjágróður.

Opið hús – kynning í Hofi

Tillagan verður kynnt á myndrænan hátt á opnu húsi í Hofi næsta þriðjudag, 12. október klukkan 16.00 til 19.00. Þangað eru allir velkomnir. Starfsfólk bæjarins og skipulagsráðgjafi verða á staðnum til að segja frá og svara spurningum. „Íbúar eru hvattir til að kynna sér skipulagið og koma ábendingum á framfæri,“ segir á vef bæjarins.

Hægt er að smella hér til að koma á framfæri ábendingum. Ábendingum er einnig hægt að koma á framfæri skriflega til skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, eða í gegnum netfangið skipulagssvid@akureyri.is

Á þriðjudagskvöldið klukkan 20.00 verður kynningarfundur í Hofi fyrir fagaðila sem koma að uppbyggingu íbúðasvæða. „Markhópar fundarins eru meðal annars byggingarverktakar, fasteignasalar, mannvirkjahönnuðir og aðrir sem koma að uppbyggingu með einum eða öðrum hætti. Fundurinn fer fram í Hömrum í menningarhúsinu Hofi.“ Gestir eru beðnir um að skrá sig á fundinn hér.

Gagnlegar hugmyndir frá íbúum

Lýsing á skipulagsverkefninu var kynnt í maí og þá var jafnframt óskað eftir hugmyndum frá íbúum í gegnum samráðsvettvanginn Okkar Akureyrarbæ.

Á vef bæjarins segir: „Fjölmargar áhugaverðar og gagnlegar hugmyndir bárust sem voru hafðar til hliðsjónar við skipulagsvinnuna og rötuðu nokkrar þeirra með einum eða öðrum hætti inn í drög að deiliskipulagi. Sem dæmi má nefna hugmyndir um ofanvatnslausnir, aðgerðir til að draga úr umhverfisáhrifum, botngötur og snjósöfnunarsvæði, áherslu á gott stígakerfi, tillögu um matjurtagarða fyrir íbúa og að jarðefni sem falli til við framkvæmdir verði notað til að búa til útivistarsvæði. Helstu tillögur sem bárust og viðbrögð við þeim er að finna í kynningargögnum deiliskipulagsins.“ 

  • Athygli er vakin á því að skipulagssvæðið var í upphafi kynnt undir vinnuheitinu Kollugerðishagi en ákveðið hefur verið að svæðið fái annað nafn þegar fram líða stundir.

„Skipulagstillagan verður í kynningarferli til 29. október. Þá verður unnið úr ábendingum frá íbúum, umsagnaraðilum og öðrum hagsmunaaðilum áður en skipulagsráð og bæjarstjórn taka tillöguna til frekar umfjöllunar og afgreiðslu. Að því loknu verður tillagan auglýst og kynnt vel í sex vikur áður en hún verður tekin aftur fyrir til samþykktar,“ segir á vef bæjarins. 

Skipulagssvæðið eins og það lítur út í dag. Mynd af vef Akureyrarbæjar.