Turninn málaður gulur á nýjan leik
Rekstraraðilar Turnsins Kebab í göngugötunni á Akureyri hafa ákveðið að mála Turninn gulan. Vinna stendur nú yfir við verkið.
Akureyri.net greindi nýlega frá því að Turninn væri orðinn grár. Fréttin vakti mikil viðbrögð hjá lesendum sem fannst eftirsjá af litríkum Turninum.
Að sögn rekstrarstjóra staðarins, Ahmed Bader Hamdan, var farið af stað í breytingarnar á staðnum samkvæmt ákveðinni hugmynd. Málningarvinnan tafðist hins vegar vegna veðurs og þegar grái liturinn var kominn á tvo veggi áttuðu eigendur sig á því að önnur útfærsla myndi henta húsinu betur.
Veggir hússins verða því málaðir gulir aftur, ekki þó í sama gula lit og áður heldur aðeins meira út í sinnepsgulan. Gluggarnir verða málaðir hvítir en blár litur verður á svæði undir gluggum og víðar.

Svona var hugmyndin sem eigendur Turninn Kebab byrjuðu að vinna með en ákváðu eftir að hafa málað tvo veggi gráa að breyta í útfærsluna hér fyrir neðan. Ef veður leyfir verður því Turninn fljótlega orðinn litríkur á nýjan leik.
