Breytt ásýnd litríka turnsins í miðbænum
Litríkasta hús göngugötunnar á Akureyri, Hafnarstræti 100b, hefur misst lit sinn. Húsið, sem er eitt mest myndaða hús miðbæjarins, hefur borið ýmsa upplífgandi liti, en var nú nýlega málað grátt.
Húsið sem er aðeins 18 fm að stærð, samkvæmt fasteignamati ríkissins, hefur hýst ýmiss konar veitingasölu í gegn um tíðina. Samkvæmt heimasíðu Arnórs Blika, sem hefur kynnt sér sögu flestra áhugaverðra húsa í bænum, var þar sælgætisverslun frá uppafi og til ársins 2007 en þá opnaði þar veitingastaðurinn Indian Curry Hut. Þá hefur verið seldur ís í húsinu en nú er þar Kurdo Kebab til húsa.

Ferðamenn á Akureyri taka gjarnan myndir af Turninum í göngugötunni enda þykir húsið krúttlegt. Einu sinni var Turninn sægrænn að lit. Myndir: Facebooksíðan Akureyri-miðbær
Húsið, sem er í eigu O.C.T ehf í Hafnarfirði, var byggt árið 1927 og á því 100 ára afmæli á næsta ári. Það er nokkuð sérstakt í útliti, með valmaþaki og klætt með steinblikki. Samkvæmt óformlegu spjalli blaðamanns við nágranna hússins bentu þeir á að nýji liturinn væri kannski ekki það versta við húsið heldur þyrfti húsið á góðri yfirhalningu að halda enda orðið vel aldrað.

Þessar myndir af Turninum eru frá 2021-22. Myndir: Facebooksíðan Akureyri -miðbær.

1. ágúst 2018 þegar ísbúðin Valdís opnaði í Turninum. Mynd: Facebooksiðan Akureyri-miðbær.

Þessi mynd var tekin 18.mars 2012 en þá var veitingastaðurinn Indian Curry Hut í húsinu. Mynd: Arnór Bliki