Tryggvi nýr formaður Einingar-Iðju
Tryggvi Jóhannsson tekur við sem formaður verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju frá og með deginum í dag, 1. júní. Eins og akureyri.net greindi frá í gær tilkynnti Anna Júlíusdóttir frá því á aðalfundi félagsins í apríl sl. að hún ætlaði að láta af störfum frá og með þessum mánaðamótum.
Í frétt á vefsíðu Einingar-Iðju kemur fram að samkvæmt lögum félagsins tekur varaformaður við formannsembættinu og stjórn félagsins tekur síðan ákvörðun um hver tekur að sér hlutverk varaformanns. Tryggvi var kjörinn varaformaður félagsins árið 2024 en hafði setið sem starfandi varaformaður frá árinu 2023. Hann hefur setið í stjórn félagsins frá 2017, en þá kom hann inn í hana sem nýr formaður Matvæla- og þjónustudeildar. Áður en hann tók við sem formaður deildarinnar hafði hann setið sem varaformaður hennar frá árinu 2014, ritari frá árinu 2012 og meðstjórnandi frá árinu 2008.
Í fréttinni á vef Einingar-Iðju segist Tryggvi fullur tilhlökkunar að taka við félaginu. „Ég hlakka til samstarfsins við félagsmenn við að gera okkar góða félag enn betra,“ segir Tryggvi.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar sem fram fór nýlega var samþykkt samhljóða að Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir myndi taka að sér hlutverk varaformanns. Elsa Hrönn mun hefja störf hjá félaginu á morgun.