Anna lætur af störfum hjá Einingu-Iðju
Anna Júlíusdóttir, sem verið hefur formaður verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju frá árinu 2023, tilkynnti á aðalfundi félagsins 22. apríl sl. að hún hygðist láta af störfum hjá félaginu frá og með 1. júní. Síðasti formlegi vinnudagur Önnu á skrifstofunni var sl. föstudag og kvaddi samstarfsfólk hennar á skrifstofunni hana þá með virktum.
Tryggvi Jóhannsson varaformaður mun taka við formennskunni af Önnu og stjórn félagsins tekur síðan ákvörðun um hver tekur við hlutverki varaformanns af honum. „Ég hef ekki áhyggjur af framtíð félagsins þar sem það er valinn maður í hverju rúmi. Með sterkri stjórn félagsins, frábæru starfsfólki, öflugum trúnaðarmönnum og öllu okkar félagsfólki er framtíðin björt. Félagið stendur sterkt og treysti ég Tryggva algjörlega til að taka við formennskunni,“ segir Anna Júlíusdóttir í frétt á vefsíðu Einingar-Iðju.
Áður en Anna tók við formennskunni af Birni Snæbjörnssyni hafði hún setið sem varaformaður frá árinu 2012 en kom fyrst inn í aðalstjórn félagsins árið 2001 sem formaður Matvæladeildar og síðar formaður Matvæla- og þjónustudeildar.