Fara í efni
Fréttir

Tilfelli frá SAk á þingi hjartalæknasamtaka

Gunnar Þór Gunnarsson og Oddný Brattberg Gunnarsdóttir. Mynd: Vefsíða SAk.

Ársþing evrópsku hjartalæknasamtakanna var haldið í Madrid nýlega. Ráðstefnan er stærsta samkoma hjartalækna í heiminum og sóttu hana að þessu sinni rúmlega 33.000 þátttakendur. Tvö erindi frá Gunnari Þór Gunnarssyni hjartalækni á Sjúkrahúsinu á Akureyri og samstarfsfólki voru flutt á ráðstefnunni.

Oddný Brattberg Gunnarsdóttir, sérnámslæknir í lyflækningum, flutti erindi sem er er hluti af doktorsverkefni hennar sem snýr að rannsóknum á ofvaxtarhjartavöðvakvilla á Íslandi, þar sem arfberar stökkbreytingar sem valda sjúkdómnum eru sérstaklega skoðaðar. Rannsóknin er doktorsverkefni Oddnýjar við HÍ sem leitt er af Berglind Aðalsteinsdóttur á Landspítala í samstarfi við Gunnar Þór á SAk, Davíð O. Arnar á Landspítalanum (LSH), í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu. Rannsóknarverkefnið er framhald doktorsverkefnis Berglindar sem Gunnar Þór stýrði á sínum tíma.

Sagt frá afar sjaldgæfu tilfelli sem kom upp á SAk 

Oddný flutti einnig erindi þar sem sagt var frá afar sjaldgæfu tilfelli á SAk þar sem kölkun í hjartavöðva greindist eftir alvarlega streptókokkasýkingu og fjöllíffærabilun. Einungis örfáum slíkum tilfellum hefur verið lýst. Meðhöfundar erindisins auk Gunnars Þórs og Oddnýjar voru Björn Flygenring og Ævar Örn Úlfarsson hjartalæknir á LSH.

Auk framlagsins á ráðstefnunni nýttu læknarnir tækifærið til að funda með samstarfsfólki og meðrannsakendum, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, og afla sér nýrrar þekkingar og tengsla á sínu sérsviði, að því er segir í frétt á vefsíðu SAk.