Fara í efni
Fréttir

„Það er hægt að hafa áhrif á alla hegðun“

„Stundum þarf bara einhvern utan við myndina til þess að hjálpa til við að benda á að ef þessu eða hinu er breytt þá er hægt að breyta allri hegðunarkeðjunni,“ segir atferlisfræðingurinn Elín Dröfn Þorvaldsdóttir.

Elín Dröfn Þorvaldsdóttir er eini starfandi klíníski atferlisfræðingurinn á Akureyri. Eftir nokkur ár við nám og störf í Bandaríkjunum sneri hún aftur heim og starfar nú hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni, þar sem hún er jafnframt einn eigenda. Hún segir eftirspurn eftir faglegri aðstoð við börn og fjölskyldur mikla og að mikilvægt sé að grípa inn í áður en vandinn verður of stór.

  • Þetta er síðari hluti viðtals við Elínu Dröfn

Í GÆR – AUÐVELDA FÓLKI AÐ LEITA SÉR HJÁLPAR


„Ég horfi fyrst og fremst á hegðun, hvað er að valda ákveðinni hegðun, hverjar eru afleiðingar hegðunarinnar og hvað við getum gert til þess að breyta henni ef þarf,“ segir Elín þegar hún er beðin um að útskýra í grófum dráttum viðfangsefni atferlisfræðinga. Hún nefnir sem dæmi barn sem truflar ítrekað í kennslustund og er sent fram á gang. Að senda barnið fram er gert í þeim tilgangi að draga úr truflun í kennslustund, en barnið gæti verið að sýna truflandi hegðun einmitt til að losna undan kröfum. Í þessu tilviki er betra að skoða hvernig hægt er að gera verkefnin viðráðanlegri og kenna barninu að biðja um hjálp eða pásu.


Eigendur Heilsu - og sálfræðiþjónustunnar; Elín er lengst til vinstri, þá Sigrún Vilborg Heimisdóttir og Ingibjörg Ragna Malmquist lengst til hægri.  

Vildi skilja hegðun fólks

Elín er eini atferlisfræðingurinn sem sinnir klínísku starfi á Akureyri. Annar atferlisfræðingur starfar við Háskólann á Akureyri en Elín segir fagstéttina fara ört stækkandi á Íslandi, meðal annars eftir að farið var að bjóða upp á meistaranám í faginu hér á landi. „Ég er bara að bíða eftir því að atferlisfræðingarnir sem eru að útskrifast komi hingað norður,“ segir hún og hlær.

Leið Elínar í atferlisfræðina var hins vegar ekki bein. Hún ólst upp í Arnarneshreppi, sem nú tilheyrir Hörgársveit, og þegar hún útskrifaðist af málabraut Menntaskólans á Akureyri hafði hún alls ekki heyrt af faginu. Áhugi á mannlegri hegðun leiddi hana í BS-nám í sálfræði við Háskóla Íslands. Samhliða náminu vann hún á leikskóla og kynntist þar fólki sem starfaði við atferlisfræði. Hún kynntist einnig fólki sem hafði farið til Boston í nám og starfað hjá New England Center for Children. Eftir að hafa sótt ráðstefnu atferlisfræðinga á Íslandi og hlýtt þar á bandarískan kennara ákvað hún að sækja um nám ytra. „Það small eitthvað hjá mér. Mig langaði að skilja hvað liggur að baki hegðun fólks og hvernig hægt væri að hafa áhrif á hana.“

Fjölbreyttir fagaðilar í stærra húsnæði

Elín og eiginmaður hennar Bjarki Guðmundsson fluttu til Bandaríkjanna árið 2017 og ætluðu sér upphaflega aðeins að vera ytra í þrjú ár, en árin urðu fleiri. Námið gerði Elínu nefnilega kleift að vera samhliða í fullu starfi og safna þannig nauðsynlegri klínískri reynslu og handleiðslutímum. „Við ílengdumst í Boston sem er frábær borg, sem og vinnustaðurinn minn New England Center for Children. Reynslan sem ég fékk þar var ómetanleg.“

Árið 2024 flutti Elín aftur heim ásamt eiginmanni og dóttur og fjölskyldan settist að á Akureyri. Sama ár hóf hún störf hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni en í júní síðastliðnum bættust hún og Ingibjörg Ragna Malmquist í eigendahóp fyrirtækisins með Sigrúnu Vilborgu Heimisdóttur, sem stofnaði fyrirtækið árið 2021. Samhliða þessum breytingum tók Elín einnig við starfi framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Fyrirtækið er til húsa við Glerárgötu og stækkaði nýlega húsnæði sitt. Þar eru nú sjö viðtalsherbergi auk fundarsalar sem er m.a. nýttur fyrir námskeið en á stofunni starfar fjölbreyttur hópur fagaðila.

Húsnæði Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar er huggulegt en þangað leitar fjölbreyttur hópur fólks með ýmiss konar vandamál. 

Eftirspurn eftir barnaþjónustu að aukast

Aðspurð að því eftir hvers konar þjónustu sé mest eftirspurn hjá þeim, en þau fást m.a. við sálfræðiþjónustu og ráðgjöf fyrir börn og fullorðna, ADHD-skimanir og greiningar, einhverfuskimanir og þroska- og taugasálfræðimat, áfallameðferð, hjóna- og pararáðgjöf og þjónustu við vinnustaði segir Elín að þau fái alla flóruna, en nefnir þó að eftirspurn eftir barnaþjónustunni hafi verið að aukast. „Til stofunnar leitar fólk með fjölbreyttan vanda, en meðal þess sem fagfólkið okkar fæst við eru hegðunarerfiðleikar barna, kvíði og skólaforðun, ADHD og annar taugaþroskavandi, áföll og tilfinningavandi auk streitu og örmögnunar hjá fullorðnum.“

Verkefnin sem Elín sinnir á Akureyri eru að ýmsu leyti frábrugðin því sem hún var að vinna við úti hjá New England Center for Children, þótt grunnhugsunin sé sú sama: að bæta líf skjólstæðingsins. Í Boston vann Elín með börnum og ungmennum með miklar stuðningsþarfir. Hún stýrði um tíma teymi með um 24 starfsmönnum sem sinnti níu nemendum en alls voru um 1200 starfsmenn hjá fyrirtækinu. Til samanburðar eru um 14 manns starfandi hjá Heilsu- og sálfræðimiðstöðinni, ekki allir í fullu starfi.

Börnin sem Elín vann með í Boston bjuggu allt árið á heimilum á vegum stofnunarinnar, þótt sum þeirra færu heim öðru hverju. „Þau áttu það öll sameiginlegt að sýna alvarlega hegðun, eins og sjálfsskaða eða árásargirni, sem gerði það að verkum að þau gátu ekki búið heima hjá sér,“ segir Elín. Þótt hún vinni yfirleitt ekki með jafn alvarleg tilfelli í dag leggur hún áherslu á að hegðunarvandi barns sé aldrei léttvægt mál. „Hegðunarvandi sem virðist ekki mikill út á við getur valdið fjölskyldunni gríðarlegu álagi.“

Heilsu- og sálfræðiþjónustan stækkaði nýlega húsnæði sitt. Þar eru nú sjö viðtalsherbergi auk fundarsalar sem er m.a. nýttur fyrir námskeið en á stofunni starfar fjölbreyttur hópur fagaðila.

Þverfagleg teymisvinna skiptir máli

Eins og á hennar fyrri vinnustað úti í Boston þá er unnið í teymum hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni. Að mati Elínar er það einn af styrkleikum fyrirtækisins en þar starfar fólk úr ólíkum fagstéttum sem getur unnið saman að málum skjólstæðinga. Á stofunni starfa m.a. sálfræðingar, geðhjúkrunarfræðingur, félagsráðgjafar og iðjuþjálfi. Elín segir þverfaglegu teymisvinnuna skipta miklu máli. Fólk sem leitar til stofunnar þurfi þannig ekki endilega sjálft að vita hvort það þurfi á sálfræðingi, atferlisfræðingi eða öðrum fagaðila að halda. Skrifstofustjóri tekur við fyrsta símtalinu og í framhaldinu er metið hvaða fagaðili er líklegastur til að geta aðstoðað viðkomandi. Þetta geti verið sérstaklega mikilvægt þegar um börn og fjölskyldur er að ræða. Barn geti til dæmis glímt bæði við kvíða og hegðunarvanda og þá geti fleiri en einn fagaðili komið að málinu. „Kannski getur barn eða fjölskylda byrjað hjá mér eða hjá barnasálfræðingi. Sálfræðingurinn er kannski að vinna með kvíðavandann en svo tek ég við með hegðunarvandann.“

Teymisvinnan einskorðast ekki heldur aðeins við stofuna sjálfa. Elín segir Heilsu- og sálfræðiþjónustuna eiga í miklu samstarfi við skólaþjónustur, félagsþjónustur og barnavernd. Stofan hefur einnig unnið með sveitarfélögum á Norðurlandi þar sem fagaðilar koma inn í skóla og leikskóla. Slíkt samstarf getur líka gefið fagaðilum betri mynd af aðstæðum barns en fæst í viðtalsherberginu einu saman.


Hluti starfsmanna Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar. Efri röð frá vinstri: Katrín Ösp Jónsdóttir, Birgitta Níelsdóttir, Ingibjörg Ragna Malmquist, Elín Dröfn Þorvaldsdóttir, Elín Karlsdóttir, Inga Dagný Eydal og Þorleifur Kr. Níelsson. Neðri röð frá vinstri: Elísabet Ýrr Steinarsdóttir, Sigrún Heimisdóttir, Rósa Árnadóttir og Inga Hildur Jóhannsdóttir. 

Hegðun verður ekki til í tómarúmi

Það kemur ef til vill sumum foreldrum á óvart að þegar þeir leita til Elínar vegna hegðunar barns er það ekki endilega barnið sem fær stærsta verkefnið. „Ég segi alltaf við mína skjólstæðinga að aðalvinnan sé hjá foreldrunum,“ segir hún. Þetta eigi sérstaklega við eftir því sem börnin eru yngri. „Ástæðan er sú að hegðun verður ekki til í tómarúmi. Skoða þarf rútínu heimilisins, aðdraganda hegðunar og afleiðingar hennar.“

Undirliggjandi vandi getur einnig verið til staðar, svo sem kvíði, athyglisbrestur, einhverfa eða önnur taugaþroskaröskun. Slíkt geti ýtt undir að ákveðnar hegðunarkeðjur myndist. „Stundum þarf bara einhvern utan við myndina til þess að hjálpa til við að benda á að ef þessu eða hinu er breytt þá er hægt að breyta allri hegðunarkeðjunni.“

Þess vegna getur skipt miklu máli að sjá barnið í sínu daglega umhverfi. Elín hefur farið bæði inn á heimili og í skóla í tengslum við mál sem hún sinnir. „Hver fjölskylda er einstök,“ segir hún. „Ég get fengið foreldrana til mín og þau geta sagt mér ýmislegt um barnið, en svo kemur kannski annað á daginn þegar ég sé hvernig barnið hegðar sér heima eða í skólanum. Þar er kannski eitthvað hegðunarmynstur í gangi sem foreldrarnir átta sig ekki einu sinni á sjálfir.“

„Mestur árangur næst þegar fagfólk vinnur saman, í góðu samstarfi við fjölskylduna og skólann, með hag barnsins að leiðarljósi,“ segir Elín. 

Hægt að hafa áhrif á alla hegðun

Talið berst að því hvort það sé þá hægt að laga allan hegðunarvanda. „Það er hægt að hafa áhrif á alla hegðun,“ svarar Elín en setur þó strax fyrirvara við orðið „laga“. Markmiðið sé ekki að koma öllum í sama form heldur að mæta einstaklingnum þar sem hann er. „Minn fókus og okkar fókus er að lífsgæði einstaklingsins sem þarf þjónustuna séu sem mest og best og að hann hafi sem bestan kost á sínu besta lífi. Það getur þýtt allt annað fyrir mig og þig.“ Og Elín ítrekar að það séu engar skyndilausnir í boði. „Það er engin gullpilla sem vindur bara ofan af kvíða. Þetta tekur tíma og þetta er vinna. En þetta er vinna sem mun skila sér í betri líðan.“

Spurð hverju hún myndi helst vilja breyta í geðheilbrigðisþjónustu barna og ungmenna fyrir norðan segir Elín að svarið sé einfalt: „Greiðari aðgangur að fagfólki.“ Biðlistar séu til staðar víða í kerfinu og hún segir að fleiri fagaðilar myndu augljóslega hjálpa. Hún bindur vonir við að fleiri nýútskrifaðir atferlisfræðingar skili sér norður. Greiðsluþátttaka geti einnig skipt máli. Sá sem getur greitt sjálfur fyrir þjónustu geti í sumum tilfellum komist fyrr að en sá sem þarf að fara í gegnum opinbert kerfi á borð við skólaþjónustu, félagsþjónustu, barnavernd eða aðrar stofnanir og sveitarfélög. „Það hafa ekki allir kost á því að koma sjálfir.“

Elín segir jafnframt ánægjulegt að viðhorf til geðheilbrigðisþjónustu hafi breyst. Fólk sé mun opnara fyrir því að sækja sér aðstoð við andlegum veikindum. „Ég var að lesa grein þar sem kona var að rifja upp með vinum sínum: Manstu eftir að hafa verið kvíðin þegar þú varst barn? Nei, ég man ekki eftir orðinu kvíðin. En það var kvíði samt til staðar. Við erum kannski bara orðin svolítið betri í að tala um það.“

Þrátt fyrir umræðu um kvíða, skólaforðun, biðlista, álag á fjölskyldur og skort á fagfólki segist Elín vera bjartsýn þegar hún horfir til framtíðar. „Ég er alltaf glasið-er-hálffullt-týpan.“ Hún sér jákvæð teikn í fjölgun atferlisfræðinga og aukinni áherslu á þverfaglegt samstarf. „Reynsla mín, bæði úti og hér heima, er sú að enginn ber þetta einn. Mestur árangur næst þegar fagfólk vinnur saman, í góðu samstarfi við fjölskylduna og skólann, með hag barnsins að leiðarljósi,“ segir hún að lokum.

  • Þetta var síðari hluti viðtals við Elínu Dröfn

Í GÆR – AUÐVELDA FÓLKI AÐ LEITA SÉR HJÁLPAR