Auðvelda fólki að leita sér hjálpar
Heilsu- og sálfræðiþjónustan á Akureyri vinnur nú að tveimur verkefnum sem eiga að auðvelda fólki að fá sálfræði- og geðheilbrigðisþjónustu án þess að kostnaðurinn lendi að fullu á einstaklingnum. Annað verkefnið beinist að börnum og ungmennum sem glíma við alvarleg veikindi eða veikindi nákominna en hitt að fullorðnum sem eru við það að detta út af vinnumarkaði. Elín Dröfn Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri og einn eigenda stofunnar, segir mikilvægt að ná til fólks áður en vandinn verður of stór.
„Það getur verið kostnaðarsamt að leita sér sálfræði- og geðheilbrigðisþjónustu á eigin vegum, þ.e.a.s. án tilvísunar. Á sama tíma getur bið eftir niðurgreiddri þjónustu verið talsverð þegar farið er í gegnum opinbera kerfið. Markmiðið með þessum tveimur verkefnum, sem beinast að ólíkum hópum, er að reyna að grípa inn í áður en vandinn vex, þar sem kostnaðurinn getur verið raunveruleg hindrun fyrir marga að þeir leiti sér aðstoðar,“ segir Elín.

Elín Dröfn Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri og einn eigenda Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar, segir mikilvægt að ná til fólks áður en vandinn verður of stór.
Vilja ná til fólks áður en snjóboltinn verður of stór
Annað verkefnið er unnið í samstarfi við Lady Circle en það beinist að börnum og ungmennum sem annaðhvort glíma sjálf við alvarleg veikindi eða eiga nákominn aðstandanda sem gerir það. „Markmið verkefnisins er að veita börnum og ungmennum, allt að 25 ára aldri, fjárhagslegan stuðning til að sækja sér stuðnings-/samtalsmeðferð vegna erfiðra lífsatburða eða annarra aðstæðna sem hafa veruleg áhrif á andlega líðan og velferð. Hver einstaklingur getur fengið allt að þrjú viðtöl og fellur enginn kostnaður af þessum þremur viðtölum á skjólstæðinginn,“ segir Elín en opnað hefur verið fyrir verkefnið núna í október.
Hitt verkefnið, sem kallast Brú, er á vegum Kara Connect og snýr að fullorðnu fólki sem er farið að glíma við vanlíðan eða álag sem getur orðið til þess að það detti út af vinnumarkaði. Markmiðið með þessu verkefni er að sögn Elínar að ná til fólks áður en staðan er orðin svo alvarleg að þörf er á umfangsmeiri endurhæfingu. „Þetta er nákvæmlega fólkið sem okkur klæjar svolítið í puttana að ná að þjónusta betur áður en snjóboltinn er orðinn of stór,“ segir hún. Fólk kemst inn í þjónustu í gegnum verkefnið ef vinnustaður viðkomandi er þátttakandi í verkefninu en þjónustan er starfsmanninum að kostnaðarlausu. Meiri upplýsingar varðandi þetta verkefni koma fljótlega inn á heimasíðu Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar.

Mynd: Unsplash/Nik Shuliahin
Íslendingar fara langt á hnefanum
Það eru þó ekki bara langir biðlistar eða kostnaður við sál- og geðheilbrigðisþjónustu sem hindra fólk í að leita sér aðstoðar áður en til veikindaleyfis kemur. Eftir nokkur ár við nám og störf í Bandaríkjunum fann Elín sterkt fyrir ákveðnu viðhorfi þegar hún flutti aftur heim. „Íslendingar fara mjög langt á hnefanum og þeir er ekkert að barma sér að ástæðulausu. Þeir eru oft tilbúnir að ganga ansi langt áður en þeir viðurkenna að þeir þurfi aðstoð,“ segir Elín og bendir á að starfsfólk Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar, sem sinnir fullorðinsþjónustu, sjái þetta gjörla. „Við viljum að fólk setji á sig súrefnisgrímuna aðeins fyrr og þetta verkefni stuðlar að því,“ segir Elín.
Nánar verður rætt við Elínu á morgun en hún er eini klíníski atferlisfræðingurinn sem er starfandi á Akureyri :
Á MORGUN – „ÞAÐ ER HÆGT AÐ HAFA ÁHRIF Á ALLA HEGÐUN“