Taka þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni
Akureyrarklíníkin er einn þátttakenda í alþjóðlegu rannsóknarverkefni um ME-sjúkdóminn sem hlotið hefur styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, Horizon Europe. Þátttaka Akureyrarklíníkurinnar er í samstarfi við Landspítalann.
„Verkefnið markar mikilvæg tímamót í evrópsku samstarfi um lífvísindarannsóknir á ME og sameinar vísindafólk, heilbrigðisstarfsfólk og fulltrúa sjúklinga frá meira en tuttugu rannsóknastofnunum í Evrópu og Kanada,“ segir meðal annars í frétt á vef Sjúkrahússins á Akureyri. Styrkveitingin er talin marka tímamót fyrir rannsóknir á ME þar sem verkefnið hlaut brautargengi í gegnum strangt alþjóðlegt faglegt matsferli og staðfestir mikilvægi rannsóknasviðsins innan evrópsks vísindasamstarfs,
Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, sérfræðingur í ofnæmis- og ónæmislækningum, leiðir verkefnið fyrir hönd Landspítala í samstarfi við Friðbjörn Sigurðsson hjá Akureyrarklíníkinni.
Markmiðið með verkefninu er að auka skilning á líffræðilegum orsökum ME, þróa áreiðanleg lífmerki sem styðja við greiningu sjúkdómsins og leggja grunn að markvissari meðferð í framtíðinni. Mikil áhersla er lögð á virka aðkomu sjúklinga og hagsmunasamtaka þeirra að verkefninu. Reynsla sjúklinga með ME verður nýtt við þróun rannsóknaraðferða, flokkun sjúklingahópa og mótun tillagna sem geta nýst bæði heilbrigðiskerfum og stefnumótun. Stefnt verður að því að fá 120 sjúklinga með ME og 30 heilbrigða einstaklinga á Íslandi til að taka þátt.
- Hvað er ME?
ME er alvarlegur og langvinnur sjúkdómur sem getur haft mjög hamlandi áhrif á daglegt líf. Enn sem komið er byggist greining sjúkdómsins eingöngu á klínísku mati, sem verður oft til þess að langur tími líður þar til rétt greining fæst. Það getur haft veruleg áhrif á lífsgæði sjúklinga með ME. - Akureyrarklíníkin
Þjónustumiðstöð fyrir einstaklinga með ME-sjúkdóminn eða langvarandi einkenni covid.
Nánar er fjallað um verkefnið í frétt á vef Sjúkrahússins - sjá hér.