Surekha Datye breytir steinum í listaverk
Surekha Datye opnar sýninguna Skrautsteinar 70 plús á Amtsbókasafninu á Akureyri í dag, fimmtudaginn 10. september klukkan 16. Á sýningunni má sjá yfir 70 fjörusteina sem Surekha hefur gefið nýtt líf með ýmiss konar handverki. Steinarnir hafa meðal annars verið málaðir, þæfðir, heklaðir eða skreyttir með útsaumi, perlum, fræbelgjum og öðru.
Í frétt á vef Amtsbókasafnsins um sýninguna segir að Surekha sé indversk að uppruna og hafi búið á Akureyri í 46 ár, alla tíð á Suður-Brekkunni. Hún er menntuð í landafræði og ferðamálafræði og starfaði í um 15 ár hjá Ferðaskrifstofunni Nonna Travel.
Á ferðalögum sínum um Ísland byrjaði hún að safna fjörusteinum, án þess að vita í fyrstu hvað hún ætlaði að gera við þá. Það breyttist sumarið 2022 þegar hún kynntist listafólki sem skapaði listaverk úr steinum á netinu. Hún leitaði þá til Önnu Gunnarsdóttur textíllistakonu sem kenndi henni að þæfa utan um steina.
Síðan hefur Surekha varið ótal stundum í að skreyta steinana og gefa þeim nýtt líf. Hún segir sköpunina róandi og að steinarnir hafi sinn sérstaka sjarma, séu litríkir, persónulegir og öðruvísi. Fyrstu steinarnir voru aðeins 22 talsins í maí 2022 þegar Surekha hélt örsýningu í Gallerí Dyngjunni í Eyjafjarðarsveit, sem textíllistakonan Guðrún (Hadda) Bjarnadóttir rekur. Nú eru þeir orðnir yfir 70.
Sýningin á Amtsbókasafninu stendur til 1. október og er opin á opnunartíma safnsins, frá 8:15 til 19 á virkum dögum og frá 11 til 16 á laugardögum.