Stytting hringvegar fari í samgönguáætlun
Stytting akleiðarinnar milli Akureyrar og Reykjavíkur um allt að 20 km með gerð vegar um Húnavallaleið sunnan Blönduóss og Vindheimaleið sunnan Varmahlíðar hefur lengi verið til umræðu. Jónas B. Guðmundsson, fyrirsvarsmaður Samgöngufélagsins, fjallar um málið í grein sem akureyri.net birti í morgun, þar sem hann bendir á að ekki sé gert ráð fyrir styttingu í samgönguáætlun 2026-2040 sem lögð var fram í vetur. Hvetur hann til þess að fjallað verði um málið á Alþingi.
Jónas segir helstu kosti við gerð vega þessar leiðir séu, auk styttingarinnar, m.a. umtalsvert aukið umferðaröryggi, umferð sem nú sé beint um þéttbýli en eigi ekki þangað erindi færi síður þar um, tímasparnaður vegfarenda yrði að jafnaði um 15 mínútur, minna slit á vegum og ökutækjum, orkuþörf minnki og að draga ætti úr útblæstri og mengun.
„Einkennilegt má teljast hvað lítil umræða hefur farið fram um þessar miklu mögulegu samgöngubætur og því líkast sem um eitthvert feimnismál sé að ræða,“ skrifar Jónas.
„Samgöngáætlun er enn til umjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd og æskilegt og raunar brýnt að fá a.m.k. umfjöllun í væntanlegu áliti nefndarinnar, umræður í þinginu og helst atkvæðageiðslu um hvort gert skuli ráð fyrir gerð vega þessar leiðir, sem vonandi getur orðið, ef einhver von á að vera til að gera megi ráð fyrir þeim í náinni framtíð,“ skrifar Jónas.
- Grein Jónasar B. Guðmundssonar:
Af styttingu akleiðar milli Reykjavíkur og Akureyrar um 20 km