Fara í efni
Fréttir

Steingrímur Ingi Björnsson – minningar

Útför Steingríms Inga Björnssonar, rafvirkjameistara, verslunarmanns og fyrrverandi knattspyrnumanns, verður frá Glerárkirkju í dag. Útförin hefst kl. 13.00.

Steingrímur var fæddur 26. júní 1941 og lést 13. október síðasliðinn. Foreldrar hans voru Björn Árni Björnson og Kristín Aðalsteinsdóttir. Systkini Steingríms eru: Kristbjörg, Jóhanna Kristín B. Austfjörð, Aðalsteinn og Kristbjörn, sem öll eru látin.

Eiginkona Steingríms, Gunnur Gunnarsdóttir, lifir mann sinn. Börn þeirra fimm eru Rúnar, Halla, Harpa, Heiða og Hulda.

Steingrímur Björnsson – lífshlaupið

Þessi minnast Steingríms í greinum sem birtist á akureyri.net í dag. Smellið á nöfn höfunda til að lesa greinina.

Vignir Már Þormóðsson

Gunnur Vignisdóttir

Íþróttafélagið Þór

Úrklippa úr Morgunblaðinu – mynd Sveins Þormóðssonar af landsliðsmarki Steingríms. Hann kom Íslandi í 2:0 eftir sendingu Þórólfs Beck gegn áhugamannalandsliði Hollands í vináttuleik á Laugardalsvelli mánudagskvöldið 19. júní 1961, sléttri vikur áður en Steingrímur fagnaði tvítugsafmælinu. Ísland vann leikinn 4:3.

Steingrímur Björnsson skallar boltann í mark á Laugardalsvelli í september 1961. Hann lék þá með „Pressuliði“ íþróttafréttamanna gegn landsliðinu. Steingrímur skoraði í tvígang í leiknum sem Pressuliðið vann 5:3.