Sólon færir nýtt líf í laufabrauðshefðina
Á undanförnum árum hefur Sólon Sverrisson þróað laufabrauðshjól og stimpla sem gera fólki kleift að skreyta laufabrauðið með nýjum og fjölbreyttum mynstrum. Það sem hófst sem tilraun tveggja skólafélaga í vélstjórn við Verkmenntaskólann á Akureyri er nú orðið að fyrirtækinu Þrídí ehf, þar sem tuttugu þrívíddarprentarar eru að störfum nær allan sólarhringinn. Og þótt jólin séu stærsti sölutíminn er starfsemin orðin mun fjölbreyttari.
„Ég og félagi minn Gísli Már Þórðarson vorum báðir í vélstjórn í VMA og við höfðum báðir gaman af svona þrívíddarprenti. Við vorum alltaf að sýna hvor öðrum einhver þrívíddarprent. Svo kom hann einn daginn með einhvers konar laufabrauðshjól. Það var kannski ekki upp á tíu en hugmyndin var ágæt,“ segir Sólon aðspurður að því hvernig þetta hefði allt saman byrjað. „Við spurðum einn kennarann hvort hann vildi kaupa svona laufabrauðshjól og viðbrögðin voru strax jákvæð. Svo spurðum við annan kennara og hann kom með lista yfir sjö manns sem vildu líka fá hjól. Þá sáum við að það gæti verið markaður fyrir þetta.“

Með laufabrauðsstimplunum er hægt að skera út flókin og skemmtileg mynstur í laufabrauðið, til dæmis jólatré og snjókorn, sem erfitt væri að gera með hefðbundnu laufabrauðshjóli. Sólon leggur þó ríka áherslu á að stimplarnir eigi ekki að koma í stað handverksins sem fylgir laufabrauðsgerðinni heldur eru þeir aðeins skemmtileg viðbót. Þeir skera aðeins mynstrið og svo þarf eftir sem áður að fletta með hefðbundnum hætti.
Öflugt nýsköpunarfyrirtæki
Þegar Gísli hélt utan til Portúgals í flugnám ákvað Sólon að halda áfram á eigin spýtur og þróaði laufabrauðshjólin og starfsemina enn frekar. Hann bætti við nýjum útfærslum, hannaði laufabrauðsstimpla og fór jafnframt að taka að sér fjölbreytt verkefni á sviði þrívíddarprentunar. Fyrir ári, þegar hann varð 18 ára gamall, lét hann svo til skarar skríða og stofnaði fyrirtækið Þrídí ehf. utan um starfsemina en þá var starfsemin þegar orðin það umfangsmikil að tímabært var að koma henni í formlegan farveg. Síðan hefur reksturinn vaxið jafnt og þétt og í dag á Sólon tuttugu þrívíddarprentara sem eru að störfum nánast allan sólarhringinn. Það sem hófst því sem skemmtileg tilraun tveggja skólafélaga er því orðið að öflugu fyrirtæki í höndum þessa 19 ára Akureyrings.
- Þetta er ekki eina nýsköpunarfyrirtækið sem Sólon kemur nálægt, akureyri.net sagði nýlega frá fyrirtækinu Tær Tunna sem býður upp á sorptunnuþrif en það er rekið af Sóloni og félaga hans. Sjá nánar hér: Ungir og óhræddir við skítverkin

Sólón fékk snemma áhuga á þrívíddarprentun og fór ungur að prófa sig áfram á því sviði. Hann útskrifaðist úr vélstjórn frá VMA síðastliðið vor og stofnaði fyrirtækið Þrídí ehf. 18 ára gamall. Fyrirtækið er til húsa á Eyrinni á Akureyri. Fyrirtækið á tuttugu þrívíddarprentara sem eru í gangi svo gott sem allan sólarhringinn allt árið um kring. Verkefnin eru af ýmsum toga.
Ódýr en sterkbyggð laufabrauðshjól
Eins og áður segir var laufabrauðshjólið upphafið af stofnun Þrídí ehf. Fyrstu hjólin voru einföld að gerð en smám saman hafa þau verið endurbætt, bæði hvað varðar styrkleika, endingu og notagildi. Nýjasta gerðin er með stálöxli og er sett saman með sérstökum hitabúnaði sem tryggir sterka samsetningu. Sólon flytur sjálfur inn plastið sem notað er í framleiðsluna, styrkta gerð af svokölluðu PLA-plasti sem hefur vottun varðandi snertingu við matvæli. Hann telur vinsældir laufabrauðshjóla Þrídí ekki síst felast í því hversu ódýr þau eru í samanburði við hefðbundin hjól úr messing.
„Hjólið hjá mér kostar 3.750 krónur. Hefðbundið messinghjól getur kostað 25 til 35 þúsund krónur og svo getur kostað um 15 þúsund krónur að láta brýna það þegar það verður bitlaust,“ segir hann. Þá þekkja margir að í fjölmennum laufabrauðsboðum myndast bið eftir hjólinu, en með ódýrari hjólum geta fleiri tekið þátt í útskurðinum í einu. Hjólin eru jafnframt sterkbyggð, með góðu biti, og nýjar útfærslur bjóða upp á fjölbreyttari mynstur. Í dag býður fyrirtækið upp á þrjár gerðir laufabrauðshjóla; hefðbundið hjól, minna hjól fyrir fínlegri skreytingar og svo er sérstök sérútgáfa með glænýju mynstri. Sólon ítrekar þó að meginmarkmiðið sé að vörurnar geri laufabrauðsgerðina skemmtilegri án þess að hrófla við þeirri gömlu handverkshefð sem margir halda í heiðri.

Norðlensk hönnun og framleiðsla. Laufabrauðshjól Þrídí eru mun ódýrari en hefðbundin hjól úr messing. Þá þekkja margir að í fjölmennum laufabrauðsboðum myndast bið eftir hjólinu, en með ódýrari hjólum geta fleiri tekið þátt í útskurðinum í einu.
Laufabrauðsstimplar gera hefðina skemmtilegri
Stærsta nýjungin í jólavörunum hefur þó að sögn Sólons verið laufabrauðsstimplarnir sem hann setti fyrst á markað fyrir síðustu jól. „Ég byrjaði með þrjá stimpla í pakka og það varð alveg ótrúlega vinsælt. Fólk var mjög hrifið af þessu,“ segir hann og útskýrir hvernig stimplarnir virka. Þeim er einfaldlega þrýst ofan á laufabrauðskökuna og þá skera þeir út mynstur í deigið, svo sem jólatré eða snjókorn. Eftir stendur að fletta þarf mynstrið með hefðbundnum hætti. „Stimplarnir búa bara til skurðinn. Þú átt enn eftir að fletta þetta allt,“ útskýrir Sólon og leggur áherslu á að nýjungin sé ekki hugsuð til að taka handverkið úr laufabrauðsgerðinni, heldur gefa fólki möguleika á að skapa fallegri og fjölbreyttari mynstur en áður. Hann segir mikilvægt að varðveita þá fjölskylduhefð sem fylgir laufabrauðsgerðinni. Sjálfur hafi hann alltaf tekið þátt í laufabrauðsgerð fyrir jólin og þekki vel hversu stór hluti jólaundirbúningsins hún sé á mörgum heimilum. „Þetta er bara svo skemmtileg fjölskyldustund. Með stimplunum er hægt að gera mynstur sem annars væri mjög erfitt að gera fríhendis. Það getur líka verið sérstaklega skemmtilegt fyrir krakkana.“
Þar sem viðbrögðin við fyrstu stimplunum voru svo góð settist hann aftur við teikniborðið og hannaði þrjú ný stimplasett fyrir þessi jól. Nú eru því fjögur mismunandi sett í boði. Auk laufabrauðshjólanna og stimplanna framleiðir hann einnig ýmis önnur áhöld fyrir laufabrauðsgerðina, meðal annars mót til að skera út sjálfar kökurnar.

Þrídí hannar og prentar ljósabrakket eftir þörfum viðskiptavina.
Í jólapakkann og í jólabaksturinn
Þótt laufabrauðsgerð fari aðeins fram á afmörkuðum tíma ársins segir Sólon að eftirspurnin sé það mikil að jólavörurnar séu orðnar verulegur hluti af rekstri fyrirtækisins. Pantanir byrja að berast snemma hausts og aukast jafnt og þétt eftir því sem nær dregur jólum. Margir kaupi laufabrauðshjól fyrir eigin laufabrauðsbakstur og kaupi svo fleiri í jólagjafir handa öðrum. Mest af sölunni fer fram í gegnum vefsíðuna Þrídí.is. Þá hafa góðgerðarfélög fengið vörur hjá honum í sölu til fjáröflunar. Sólon hefur frá upphafi lagt áherslu á að halda verðinu hóflegu og gera fólki auðvelt að nálgast vörurnar, meðal annars með hagkvæmum sendingarleiðum um land allt. „Ég er að reyna að halda þessu á þannig verði að þetta sé alls ekki dýrt. Mig langar bara að sem flestir geti nýtt sér þetta.“

Í dag býður fyrirtækið upp á þrjár gerðir laufabrauðshjóla.
Loftabrakket, plastlok og aðrar sérpantanir
Þrídí ehf. er þó langt frá því að vera eingöngu jólafyrirtæki því tuttugu þrívíddarprentara eru í gangi nær allan sólarhringinn allt árið við framleiðslu á ýmsum vörum. Eitt stærsta verkefnið á eftir laufabrauðsvörunum er framleiðsla á sérstökum festingum fyrir loftljós þar sem notaðir eru svokallaðir hljóðdúkar. Þar þarf að festa ljósin með nákvæmum hætti svo þau liggi rétt við dúkinn án þess að þrýsta á hann. Festingarnar þurfa því að vera stillanlegar og oft sérhannaðar fyrir hvert verkefni. „Það kom iðnaðarmaður til mín sem vantaði svona loftabrakket. Ég hannaði slíkt fyrir hann og sá svo að það var miklu stærri markaður fyrir þetta en ég hafði áttað mig á.“
Önnur verkefni hafa verið af ýmsum toga, bæði í sérsmíði og vöruþróun fyrir fyrirtæki, iðnaðarmenn og einstaklinga. Sólon hefur meðal annars endurhannað plastlok í gólfi fyrir Amtsbókasafnið á Akureyri, framleitt sérhæfða hluti fyrir mælitæki sem tengjast gervilimum og hannað piparkökustimpla fyrir íþróttafélög og fyrirtæki. „Fólk kemur til mín með alls konar vandamál og þá er mitt verkefni að teikna og finna lausn á þeim,“ segir hann og bætir við að þrívíddarprentun hafa þróast gríðarlega á síðustu árum. Það sem áður hafi fyrst og fremst verið áhugamál hjá mörgum sé nú orðið að öflugri framleiðsluaðferð. „Það er hægt að gera ótrúlega margt með þessu, miklu meira en fólk gerir sér kannski grein fyrir. Prentararnir eru orðnir svo nákvæmir og efnið svo sterkt að það er hægt að framleiða hluti sem áður hefði þurft að steypa eða smíða með öðrum aðferðum.“

Dæmi um hvað Þrídí ehf. getur framleitt; piparkökuform fyrir íþróttafélög.