Ungir og óhræddir við skítverkin
Það eru líklega fáir sem hafa sorptunnuþrif efst á óskalistanum þegar kemur að framtíðarstarfi. Félagarnir Illugi Dagur Haraldsson og Sólon Sverrisson, báðir 19 ára Akureyringar, sáu hins vegar viðskiptatækifæri í óhreinum tunnum á Akureyri og eru komnir vel á veg með að byggja upp arðbært fyrirtæki.
Þeir félagar luku framhaldsskólanámi í vor, Illugi af félagsfræðibraut Menntaskólans á Akureyri og Sólon úr vélstjórn við Verkmenntaskólann á Akureyri. Í stað þess að halda beint í frekara nám ákváðu þeir að láta reyna á eigin viðskiptahugmynd og stofnuðu fyrirtækið Tær tunna, smíðuðu sjálfir sérútbúna kerru og hófu að bjóða upp á sorptunnuþrif. Nú stefna þeir á að þróa búnaðinn enn frekar og færa út kvíarnar.

Félagarnir Illugi og Sólon, báðir 19 ára Akureyringar, létu hendur standa fram úr ermum eftir útskrift úr framhaldsskóla í vor. Þeir stofnuðu fyrirtækið Tæra tunnu, smíðuðu sjálfir sérútbúna kerru og hófu að bjóða upp á sorptunnuþrif. Nú stefna þeir á að þróa búnaðinn enn frekar og færa út kvíarna Hér eru þeir félagarnir á skrifstofunni en fyrirtækið er með aðstöðu á Eyrinni.
Skilvirkari tunnuþrif á sérsmíðaðri kerru
Hugmyndin kviknaði þegar Sólon fór að kynna sér sorptunnuþrif og komst að því að slík þjónusta hafði áður verið í boði á Akureyri en var það ekki lengur. Þá höfðu tunnurnar verið sóttar heim til fólks, fluttar í iðnaðarhúsnæði til þrifa og síðan ekið aftur á sinn stað. Honum þótti augljóst að hægt væri að gera þetta á skilvirkari hátt.
„Ég fór að skoða þetta og sá að það var hægt að kaupa svona kerru erlendis en það kostar kannski fimm til sex milljónir að flytja hana til Íslands. Ég horfði á þetta og hugsaði að ég gæti nú smíðað þetta fyrir minna,“ segir Sólon. Hann hófst því handa við að teikna og hanna eigin kerru. Þar nýttist honum bæði vélstjórnarnámið og reynsla af þrívíddarhönnun, sem hann hefur að mestu lært sjálfur. Félagarnir ákváðu snemma að standa saman að verkefninu og eiga fyrirtækið til helminga. Sólon hefur að mestu séð um tæknilega hlið rekstursins en Illugi sinnir daglegum þrifum og þjónustu við viðskiptavini.
Þeir útskýra hvernig sérhönnuð kerra gerir þeim kleift að þrífa sorptunnur þar sem þær standa, án þess að flytja þær í burtu. Á kerrunni eru tveir vatnstankar, annar fyrir hreint vatn og hinn fyrir óhreint vatn. Sérstök lyfta hífir tunnuna upp og hvolfir henni yfir safnker, þar sem hún er sápuð og þrifin með öflugri háþrýstidælu. Óhreina vatnið rennur síðan í sérstakan tank í stað þess að fara niður á planið hjá viðskiptavininum. „Við komum með vatnið og tökum það svo til baka,“ útskýra þeir. Þeir leggja áherslu á að tunnurnar séu þrifnar eftir að þær hafa verið tæmdar og því þurfi að skipuleggja vinnudaginn í kringum sorphirðuna í bænum.

Fyrirtækið Tær tunna hefur nú þegar farið til Dalvíkur og þrifið tunnur þar og strákarnir sjá fyrir sér að geta mætt með kerruna í fleiri sveitarfélög á Norðurlandi.
Maðkar í sumum tunnum
Aðspurðir hvort raunveruleg þörf sé fyrir sérstaka sorptunnuþrifaþjónustu segja félagarnir að fólk geri sér oft ekki grein fyrir því hversu slæmt ástandið geti orðið. „Ef þú hefðir séð sumar af þeim sorptunnum sem við höfum verið að þrífa, þá myndirðu ekki vilja hafa þær innan við tíu metra frá húsinu þínu,“ segir Illugi og bætir við að hann hafi meðal annars rekist á tunnur þar sem maðkar hafa myndast og jafnvel gróður tekið að vaxa. Þetta sé sérstaklega hvimleitt yfir sumartímann þegar hitnar í tunnunum og ólyktin verður meiri. Þeir segja jafnframt að sorptunnuþrif séu verk sem margir fresti eða vilji helst sleppa við. Í fjölbýlishúsum geti líka verið óljóst hver eigi að sjá um þau, en þá sé einmitt tilvalið að nýta sér þjónustuna hjá Tærri tunnu.
Ef þú hefðir séð sumar af þeim sorptunnum sem við höfum verið að þrífa, þá myndirðu ekki vilja hafa þær innan við tíu metra frá húsinu þínu
Með tunnuþrif í áskrift
Félagarnir hófu starfsemina í sumar og segja viðtökurnar hafa verið góðar. Þeir hafa einkum beint sjónum að húsfélögum en eigendur einbýlishúsa hafa einnig verið duglegir að nýta sér þrifin. Illugi hefur meðal annars gengið á milli fjölbýlishúsa á Akureyri, bankað upp á hjá formönnum húsfélaga og kynnt þeim þjónustuna. Fyrirtækið býður upp á áskriftarþjónustu þar sem sorptunnur eru þrifnar reglulega, einu sinni til fjórum sinnum á ári, eftir því hvað hentar hverjum og einum. Þannig þurfa viðskiptavinir ekki að muna sérstaklega eftir því að panta þrif í hvert skipti. Hægt er að velja mismunandi tíðni þrifa eftir tegund tunna, enda þurfa tunnur fyrir almennt sorp yfirleitt meiri þrif en þær sem ætlaðar eru fyrir pappír og plast, að sögn strákanna. Þeir benda áhugasömum á að kíkja á heimasíðuna sína þar sem nánari upplýsingar sé að finna um verð og áskriftarleiðir.

Fyrsta kerran sem smíðuð var fyrir tunnuþrifin en í vetur er stefnt að því að smíða nýja kerru með nokkrum breytingum.
Þrífa víðar en á Akureyri
Þótt verkefnið snúist að stórum hluta um líkamlega vinnu hafa félagarnir lagt mikla áherslu á að nýta tæknina til að einfalda reksturinn. Þeir nota meðal annars gervigreind við bókhald, reikningagerð og tölvupóstsamskipti. „Já við reynum að sjálfvirknivæða í raun langmest af allri skrifstofuvinnunni,“ segir Sólon og bætir við að þessi sjálfvirknivæðing sé mikilvæg svo meiri tími gefist til að byggja upp starfsemina.
Þjónustan hefur nú þegar teygt sig út fyrir Akureyri. Félagarnir prófuðu að auglýsa á Dalvík og fengu svo góð viðbrögð að þeir ákváðu að gera sér ferð þangað. „Við settum inn auglýsingu á einhverja Facebook-grúppu á Dalvík og það komu um 80 komment á færsluna. Það var fullt af fólki sem bókaði, þannig að við gerðum okkur ferð þangað,“ segja þeir. Strákarnir sjá einnig möguleika á að bjóða þjónustuna á Húsavík, Ólafsfirði og víðar á Norðurlandi. Með færanlegum búnaði sé hægt að skipuleggja sérstaka þrifadaga á hverjum stað í samræmi við sorphirðu.
Þeir segja að núverandi kerra hafi frá upphafi verið hugsuð sem fyrsta útgáfa af stærra verkefni. Tilgangurinn hafi verið að prófa hugmyndina, kanna eftirspurnina og öðlast reynslu áður en ráðist yrði í meiri fjárfestingar. Og reynslan hefur þegar kennt þeim ýmislegt. „Við hefðum ekkert getað smíðað fyrstu kerruna betur, því við vissum ekki þá allt það sem við vitum núna,“ segir Sólon. Næsta skref sé að hanna fullkomnari kerru þar sem stærri hluti þrifanna verður sjálfvirkur. Með því vonast þeir til að geta afgreitt fleiri tunnur á skemmri tíma og haldið verði þjónustunnar niðri. Langtímamarkmiðið er svo að byggja upp rekstur sem getur starfað víðar um land og skapað störf fyrir fleiri – og miðað við viðtökurnar hingað til eru þeir bjartsýnir á framhaldið.