Skert þjónusta en dýrari – SAk „holast að innan“
Allir sjúklingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri sem þurfa þjónustu meltingarskurðlækna verða að fara suður á Landspítalann til þess. Þjónustan er því skert en kostar meira og það er ekki góður „díll“ fyrir neinn.
Þetta segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson í afar athyglisverðri grein þar sem hann vekur athygli á breytingum á þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) eftir að ferliverkasamningum við sérfræðinga við stofnunina var sagt upp.
Þorvaldur Lúðvík talar af eigin reynslu. Hann greindist með erfitt krabbamein á síðasta ár, fór í gegnum lyfja- og geislameðferðir í Reykjavík og svo var meinið skorið í burtu í tólf tíma skurðaðgerð á Karolinska í Svíþjóð. Um var að ræða sérhæfða aðgerð þar sem meltingarveginum var breytt til frambúðar, segir hann.
Hér eru nokkrir mjög merkilegir punktar úr grein Þorvaldar Lúðvíks:
- Hann þarf í vikulega aðgerð til að halda fæðuvegi opnum. Aðgerðirnar voru framkvæmdar á SAk þar til fyrir skemmstu.
- „Nú flýg ég til Reykjavíkur einu sinni í viku til að fá þetta framkvæmt, þar sem sérfræðingurinn á SAk sagði upp í kjölfar þess að ferliverkasamningum („gerviverktöku“, eins og fjármálaráðuneytið kaus að lýsa fyrirkomulaginu við sérgreinalækna á SAk) var sagt upp.“
- Það grátlega er, segir Þorvaldur Lúðvík, „að læknirinn sem hefur framkvæmt aðgerðina færði starfsemi sína yfir á Læknastofur Akureyrar og getur ekki lengur sinnt aðgerðum á SAk eftir uppsögnina.“
- Með hverri ferð sem að óþörfu er farin suður tapar samfélagið meiru. Kostnaður vex að óþörfu og Sjúkrahúsið á Akureyri holast að innan. Það hættir enda að standa undir nafni sem vara-sjúkrahús þjóðarinnar.
- Niðurstaða skýrslu tveggja lækna á SAk haustið 2024, til þáverandi heilbrigðisráðhera, var að unnt væri að spara ríkissjóði umtalsverða fjármuni með því að skerða ekki sérfræðilæknaþjónustu á SAk.
- „Gæti virkilega borgað sig að Sjúkratryggingar (ríkið/skattreiðendur) greiddu fyrir 25-30 þúsund ferðir frá Akureyri til Reykjavíkur til að sækja þangað læknisþjónustu sem í mörgum tilvikum væri hægt að framkvæma á SAk?“
- „Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands voru greiddar að jafnaði 48.000 krónur vegna ferðakostnaðar alls 24.524 ferða, eða alls ríflega 1,2 milljarðar árið 2024. Ótalinn er kostnaður vegna aðstandenda, uppihalds, vinnutaps, umhverfisáhrifa o.s.frv. o.s.frv.“
- Óumdeilt er, segir Þorvaldur Lúðvík, „að þjóðhagslegur kostnaður er margfaldur þeirrar upphæðar sem „bara“ fellur til vegna ferða til LSH eða á einkastofur í Reykjavík.“
- Kostnaður sé því síst oftalinn í skýrslu læknanna. Reikna megi með að raunkostnaður sé á bilinu 2,8-4 milljörðar króna árlega.
- Með hverri ferð sem að óþörfu er farin suður tapar samfélagið meiru. Kostnaður vex að óþörfu og Sjúkrahúsið á Akureyri holast að innan. Það hættir enda að standa undir nafni sem vara-sjúkrahús þjóðarinnar.
Þorvaldur Lúðvík segir að endingu:
„Akureyri, höfuðborg raunhagkerfisins, getur ekki unað því að sífellt sé mulið undan stoðum hennar með líknandi meðferð á öllum sviðum opinberrar innviðauppbyggingar. Það er sama hvort horft er til sjúkrahússins, alþjóðaflugvallarins eða háskólans, allt eru þetta nútímainnviðir sem gera Akureyri og landsbyggðina að ákjósanlegri valkosti fyrir fjölskyldur og fyrirtæki. Allt eru þetta opinberir innviðir sem bera vitni slæmri meðferð opinbers fjár, þar sem aurinn er sparaður á meðan krónunnni er kastað.“
- Grein Þorvaldar Lúðvíks: Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin ...