Fréttir
Skammtað í aska
22.03.2026 kl. 06:00
EYRARPÚKINN - 82
Á Hraunfelli var naumt skammtað og langtímum saman lítið að éta í kotinu en oftast nóg mjólkin og haustmatur saltaður sem súrsaður og tólgarskjöldur bræddur út á fisk þegar hann fékkst fram á vorið og fögnuðu memnn nýmetinu.
Framan af vetri fóru Hraunfellingar til rjúpna og skutu á fleiri fugla.
Komust allir bræðurnir á legg og urðu sumir heljarmenni að burðum eins og Gunnlaugur á Felli og Ingólfur á Skjaldþingsstöðum sem munaði ekki um að snara fimmtíukílóasekkjum á öxlina í Kaupfélaginu og báru á herðum sér upp alla sveit.
Stjáni var þrekmaður ef hann þurfti á að halda og enginn bræðra sló slöku við enda innrættur ýtrasti sparnaður og ódrepandi dugnaður frá blautu barnsbeini.
Voru þeir einróma um þetta Einar í Eyrarvegi og Ingólfur undir Fjöllum
Og alltaf var nóg að borða á Skjaldþingsstöðum enda enginn ísskápur í rafmagnslausum bænum.
Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.
- Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Skammtað í aska er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.