Fréttir
Heiðaharmur
01.02.2026 kl. 06:00
EYRARPÚKINN - 76
Gunnar Gunnarsson var ekki í hávegum hafður á Skjaldþingsstöðum þó frændsemi væri fyrir hendi og mátti Pétur vart heyra á hann minnst en tókst á loft þegar Halldór Kiljan Laxness barst í tal enda eftirlæti Péturs sem vitnaði í Bjart í Sumarhúsum eins og náinn vin og henti kveðskap og tilvitnanir á lofti úr Heimsljósi og Íslandsklukku.
Það er lítill munur á mönnum og dýrum Jói minn hermdi mér Pétur eftir Bjarti. Fólk kann ekki að lifa á landinu og hafði Pétur yfir heilræðavísu hins sjálfstæða bónda
Margur er skauð og skortir brauð
skrimtir í nauð með dýrum.
En betri er dauði en afla auð
Úti-Rauð á mýrum.
Gunnar Gunnarsson samdi Heiðarharm eftir heimkomuna til Íslands og þótti ýmsum hart að kveðið í ljósi þess að skamma tíma sem liðinn var frá þeim sorglega atburði þegar þrjú börn drukknuðu í leysingatjörn ofan við Þorbrandsstaði.
Mér þótti það snautt hjá Gunnari að nefna dali Vopnafjarðar Þrídali í sögu sinni en bókina las ég ekki strákur.
Mamma mátti ekki ógrátandi á atburð þennan minnast og hörkutólinu Steindóri í Hólkoti vöknaði um augu þegar harmleikurinn barst á tal.
Ég sá náhvítt barnaandlit í Vítistærum brennisteinslegi, þau hvíldu á bakinu líkt og dúkkur með augun opin og fjarlægðarblá.
Það var eins og kropparnir væru úr vaxi en allt um kring hljóp fólk með gráti og ekkasogum og eins fólkið í Teigi og á Bustarfelli hinu megin Hofsánnar en samt mátti heyra saumnál detta.
Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.
- Á sunnudögum síðustu misseri hefur akureyri.net birt kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Heiðaharmur er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.