Fréttir
Sjúkrahúsið: Sjö sóttu um starf forstjóra
26.03.2026 kl. 16:50
Mynd: Þorgeir Baldursson
Sjö sóttu um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri sem auglýst var á dögunum, þar á meðal Erla Björnsdóttur sem er settur forstjóri stofnunarinnar eftir að Hildigunnur Svavarsdóttir óskaði eftir að hætta fyrir rúmum mánuði.
Tilkynnt er á vef Stjórnarráðsins í dag hverjir umsækjendur eru:
- Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
- Erla Björnsdóttir, settur forstjóri
- Guðjón Hauksson, forstjóri
- Gunnar Líndal Sigurðsson, verkefnastjóri
- Hermann Jóhannesson, flugvallastjóri
- Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri
- Snjólaug Svala Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri
Umsóknarfrestur rann út 23. mars og mun þriggja manna hæfnisnefnd meta hæfni umsækjenda og skila ráðgefandi álitsgerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í stöðuna til 5 ára.