Fréttir
Sjúkrahúsið: Mygla á rannsóknarstofunni
12.06.2025 kl. 20:50

Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mygla fannst á rannsóknarstofu Sjúkrahússins á Akureyri í síðustu viku og færa þarf starfsemina tímabundið í annað rými innan stofnunarinnar. Greint er frá þessu á mbl.is í kvöld.
Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, segir við mbl.is að í vetur hafi komið upp grunur um myglu, fyrstu rannsóknir hefðu bent til þess að hún væri afmörkuð en í síðustu viku komið í ljós að umfangið væri mun meira en gert var ráð fyrir í upphafi.
Frétt mbl.is: Mygla á rannsóknarstofu sjúkrahússins