Fara í efni
Fréttir

Setja mætti upp fleiri sjálfu-hjartaljós í bænum

Ferðamenn á Akureyri geta tekið mynd af hjartalaga ljósi sem sett var sérstaklega upp fyrir slíkar myndatökur árið 2018. Ljósið fer hins vegar fram hjá flestum ferðamönnum þar sem það er ekki í megingönguleið ferðamanna um miðbæinn. Mynd: Markaðsstofa Norðurlands

Í kjölfar gagnrýni Vegagerðarinnar á rauðu hjörtun í umferðarljósum Akureyrar hefur umræðan beinst að möguleikum til að bregðast við aukinni ásókn gangandi ferðamanna í myndatökur við ljósin. Akureyrarbær hefur áður reynt að beina ferðamönnum frá ljósunum og setti upp sérstakt myndaljós fyrir ferðamenn í miðbænum árið 2018.

„Þetta sjálfu-ljós var upphaflega sett upp sunnan við Hof fyrir ferðamenn sem vildu taka myndir en staðsetningin reyndist mögulega ekki nægilega áberandi,“ segir Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður atvinnu-, menningar- og markaðsmála hjá Akureyrarbæ, aðspurður hvort þessi hugmynd hafi klikkað. Hann vill ekki meina það, ljósið sé enn til staðar en mætti vera meira notað.

Sjálfuljósið, sem sett var sérstaklega upp fyrir ferðamenn árið 2018, hefur ekki verið mikið notað.  Mynd: Markaðsstofa Norðurlands

Sjálfuljósið hluti af framtíðar miðbæ

Núverandi staðsetning á sjálfu-ljósinu var valin með það í huga að falleg bæjarmynd næðist í baksýn en eins segir Þórgnýr að ljósið sé hluti af framtíðarsýn fyrir gönguleið frá Hofi og inn í miðbæ. Samkvæmt framtíðarskipulagi verður meginleið gangandi vegfarenda þar sem ljósið var sett upp og yfir Glerárgötu um gangbraut miðja vegu milli Kaupvangsstrætis og Strandgötu. Nú eru hins vegar liðin sjö ár síðan ljósið var sett upp og enn er það ekki hluti af megingönguleið ferðamanna um miðbæinn.

Ýmsar tillögur hafa verið nefndar á samfélagsmiðlun varðandi lausn á þeim vanda að ferðamenn skapi hættu í umferðinni þegar þeir eru að mynda umferðarljósin á Akureyri.  T.d. væri hægt að setja upp girðingar á umferðareyjum og skilti með áletruninni „please don't stop here for a photo“. Eins væri hægt að setja upp skilti við fjölfjörnustu gatnamótin sem vísa á sjálfuljósið.  Mynd: VisitAkureyri

Fleiri ferðamannaljós nauðsynleg?

„Kannski þyrfti einfaldlega að færa sjálfu-ljósið nær þeim stað þar sem fólk raunverulega tekur myndir, t.d. við neðri hluta Kaupvangsstrætis við Drottningarbraut,“ segir Þórgnýr. Bendir hann á að beint á móti útivistar- og veiðibúðinni á horni Kaupvangsstrætis og Skipagötu  sé lítið snoturt torg sem mætti mögulega nýta undir ljósið. Þá nefnir Þórgnýr að mögulega þyrftu að vera fleiri svona ferðamannaljós í bænum á stöðum þar sem þau næðu athygli ferðamanna. Með því mætti mögulega draga úr þeirri hættu sem Vegagerðin hefur vísað til, þ.e.a.s. að ferðamenn hlaupi óvarlega út á umferðareyjur til að taka myndir af hjartalaga ljósum. „Við erum opin fyrir því að skoða þetta betur,“ segir Þórgnýr.

Fyrri fréttir Akureyri.net um málið:


Sjálfuljósið bíður upp á myndatökur í öruggu umhverfi. Mynd: Markaðsstofa Norðurlands